A A A

Útskriftarhátíð FSN

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin föstudaginn 19. desember í  hátíðarsal skólans í Grundarfirði. Hátíðin hefst kl.15:00 og að henni lokinni verða kaffiveitingar í boði skólans.

 

Allir velunnarar skólans eru velkomnir.

Skólameistari

Auglýsing: Sveitarstjórnarfundur

478. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, mánudaginn 15. desember 2014 og hefst kl. 17:00.

 

Sjá fundarboð hér (.pdf)
  
Sveitarstjóri

Kynning vegna breytingar á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018

 Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi breytingu á aðalskipulagi:

 

Aðalskipulagsbreyting, breyting á þéttbýlisuppdrætti og nýtt efnistökusvæði.

 

Viðfangsefni breytingarinnar er breyting á landnotkun í þéttbýlinu á Tálknafirði og nýtt efnistökusvæði E5 í dreifbýli sem og leiðréttingar á númerum á svæðum fyrir þjónustustofnanir í þéttbýli en númer í greinargerð og uppdrætti hafa víxlast á tveimur stöðum.

 

Deiliskipulag íbúðarsvæði Túnahverfi

 

Hér er um að ræða deiliskipulag á um 11,6  ha sem afmarkast af opnu svæði við Bugatún í suðri, Lækjargötu í austri, Hrafnadalsvegi í vestri og Nátthagatúni í norðri. Í gildandi aðalskipulagi fyrir Tálknafjarðarhrepp 2006-2018 er svæðið skilgreint sem  íbúðarsvæði, en einnig sem svæði fyrir þjónustustofnanir (S8). Unnið er að breytingu á aðalskipulagi samtímis deiliskipulaginu þar sem verið er að breyta landnotkun á S8 og V3/A2 í íbúðarsvæði.

Megið markmið deiliskipulagsins eru eftirfarandi:

  • Að nýta óbyggðar lóðir við núverandi götur innan byggðarinnar
  • Að mynda nýja heilsteypta íbúðabyggð sem liggur vel í landi og myndar eðlileg tengsl við núverandi byggð.
  • Að bjóða upp á mismunandi sérbýlishúsalóðir sem taka mið að þörfum bæjarbúa varðandi stærðir og húsagerðir. 
  • Að koma fyrir öruggum gönguleiðum í gegnum hverfið sem tengjast nærliggjandi byggð, þjónustu og útivistarsvæðum.
  • Að móta öruggt og einfalt gatnakerfi.

 

Breytingin og tillaga að deiliskipulagi verða til sýnis á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps fimmtudaginn 11. desember frá 10-14.

 

Tillögurnar verða síðan auglýstar formlega í kjölfarið og gefst þá frestur til að gera athugasemdir.

Skipulagsfulltrúi Tálknafjarðarhrepps
Óskar Örn Gunnarsson

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2014/2015

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 652/2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015

 

Tálknafjörður

Seyðisfjörður

 

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1051/2014 í Stjórnartíðindum

 

Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður)

 

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. 

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

 

Umsóknarfrestur er til og með 22. desember 2014.

 

Fiskistofa 5. desember 2014

Stígamót, þjónusta íbúa Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps

Stígamót, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hafa gert með sér samkomulag um þjónustu Stígamóta við íbúa byggðarlaganna.  Samkomulagið er gert til reynslu í þrjá mánuði.  Vestfirðingar greiða ferðakostnað, en Stígamót senda á sinn kostnað ráðgjafa á staðinn hálfs mánaðarlega.   Sú heitir Þórunn Þórarinsdóttir og mun bjóða upp á ókeypis viðtalsþjónustu og ef þátttaka verður mikil, kemur vel til greina að starfrækja sjálfshjálparhóp líka.

...
Meira

120 sementsflutningabílar vegna uppbyggingar fiskeldis á Tálknafirði

Guðmundur Hilmarsson við sementsflutningabílinn. Mynd: Skessuhorn.
Guðmundur Hilmarsson við sementsflutningabílinn. Mynd: Skessuhorn.

Geysimiklar framkvæmdir eru í uppbyggingu fiskeldis og annars iðnaðar á sunnanverðum Vestfjörðum. Aalborg Portland sinnir þangað miklum sementsflutningum frá Helguvík. Það var einmitt Guðmundur Hilmarsson sem ók fyrsta flutningabílnum um borð í nýja Baldur í áætlunarferð yfir Breiðafjörðinn þegar skipið fór sína fyrstu ferð í liðinni viku. Guðmundur er bílstjóri hjá sementsinnflutningsfyrirækinu Aalborg Portland. Hann kveðst í samtali við blaðamann Skessuhorns aka sementi á einum af fjórum bílum fyrirtækisins um land allt frá birgðastöðinni í Helguvík. Það var á sinn hátt táknrænt fyrir bjartsýnina sem fylgir hinu nýja skipi að það skyldi einmitt vera bíll með byggingarefni sem ók fyrstur um borð með farm inn á rúmgott bílaþilfar nýja Baldurs.  „Ég fer með þetta til steypustöðvarinnar á Bíldudal. Þeir eru nú að fara að framleiða tólf þúsund rúmmetra af steinsteypu í mannvirki tengdum fiskeldinu og vinnslu við það á Tálknafirði. Við erum með 32 tonn af sementi í hverri ferð á þessum bílum. Það er efni í hundrað rúmmetra af steinsteypu. Þannig að þú sérð að við munum fara 120 ferðir keyrandi með sement vestur, bara til að anna þessu verkefni þarna á Tálknafirði,“ sagði Guðmundur.

Frétt tekin af: skessuhorn.is

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón