A A A

Tálknafjör 2014

    DAGSKRÁ TÁLKNAFJÖRS  25. – 27. JÚLÍ 2014

 

Föstudagurinn 25. júlí  

Kl. 17:00  Nýjung! UMFT verður með nýjan leik: Sextíu sekúndur í sigur (minute to win it)

Leikurinn verður á hátíðasvæðinu við Hrafnadalsveg nema ef veður verður óhagstætt þá verður leikurinn í íþróttahúsinu.

Kl. 21:00 Brenna og bollasúpa á Naustatanga (muna að taka með bolla) Steini trúbador skemmtir á Hópinu fram eftir nóttu – aðgangseyrir 1.000-

 

Laugardagurinn 26.júlí

Kl. 13:00-13:30 Dorgveiðikeppni á bryggjunni. Skráning á staðnum.

Mætið tímanlega. Verðlaunaafhending á grillinu um kvöldið. Verðlaun fyrir flesta fiska og þyngsta fiskinn.

 

Öll dagskrá Tálknafjörs fer fram á hátíðasvæðinu við Hrafnadalsveg.

(Í íþróttahúsinu ef við þurfum að grípa til plan B)

KL. 14:00-16:00 verður dagskrá á hátíðasvæðinu, markaður og fleira:

Lalli töframaður  kennir yngstu áhorfendunum töfrabrögð

Kassaklifur á vegum Björgunarsveitarinnar Tálkna

Söngvakeppni fyrir yngstu listamennina

Útimarkaður í tjaldinu

Ýmiskonar handverk, matur, og sælgæti og allskonar......

Kaffisala Kvenfélagsins Hörpu.

Hoppukastalar fyrir börnin.

Kl. 19:00-00:00 Götugrill á hátíðasvæðinu.

Allt á sama stað, grill og skemmtidagskrá á hátíðasvæðinu okkar við Hrafnadalsveg

 

Eftir grillið um kvöldið u.þ.b. kl. 20:00 stíga á svið:

Lalli töframaður skemmtir okkur eftir matinn.   

Lifandi tónlist, hljómsveitin Festival kemur okkur í meira stuð.

Um miðnætti treður Árni Grétar upp á Hópinu og er DJ langt fram á nótt FRÍTT

 

Aðgangseyrir á grill og skemmtidagskrá er kr. 1.500- fyrir 12 ára og eldri.

Armbönd verða seld í Landsbankanum og sundlauginni fyrir helgina og á útimarkaðnum á laugardag.

Armband er ávísun á mat!


Sjá auglýsingu: TÁLKNAFJÖR dagskrá 2014 (.pdf)




Félagsleg heimaþjónusta

Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir starfsmanni við félagslega heimaþjónustu frá og með 1. september. Um tímavinnu er að ræða.

Um laun fer eftir gildandi kjarasamningum.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.

Upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is sími: 4502300.
Umsóknir má senda í tölvupósti.

Auglýsing: Sveitarstjórnarfundur

472. fundur Sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1 Tálknafirði, fimmtudaginn 17. júlí og hefst kl 17:00.  Sjá fundarboð hér (.pdf)


Sveitarstjóri

Fundur vegna Tálknafjörs

Fundur vegna Tálknafjörs verður haldinn á Hópinu,  miðvikudaginn 16. Júlí kl. 20:00.

Styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku

Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

  1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
  2. Einstæðar mæður.
  3. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
  4. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.

 

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2014 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Haukur Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður. Netfang:  haukurhannibalsson@simnet.is

 

Í stjórn sjóðsins eru:  Haukur Hannibalsson, Óli Th.Hermannsson og Sigurður H. Magnússon.

Forstöðumaður félagsstarfs Tálknafirði

Félagsþjónusta Vestur-Barðastrandasýslu auglýsir starf forstöðumanns við íbúamiðstöðina Vindheima  laust til umsóknar. Um spennandi mótunar- og þróunarstarf er að ræða sem býður upp á fjölbreytta framtíðarmöguleika. Um 50% starf er að ræða.

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón