Sýning um franska landkönnuðinn Yves-Joseph de Kerguelen – Tremarec
Fimmtudaginn 3. júlí kl. 16 verður opnuð í Safnaðarheimilinu á Patreksfirði sýning um franska landkönnuðinn Yves-Joseph de Kerguelen – Tremarec. Á sýningunni er rakin saga fyrsta vísindaleiðangurs Frakka til Íslands. Sá leiðangur er talinn marka upphaf vináttu Frakka og Íslendinga. Sýningin rekur ferðir Yves-Joseph de Kerguelen til Íslands 1767 og 1768. Franski sendiherrann, Marc Boutillier opnar sýninguna og býður upp á léttar veitingar. Eru allir velkomnir að vera við sýningaropnunina.
...Meira
Fjölskylduhelgi í friðlandinu Vatnsfirði
Helgina 4 – 6 júlí verður haldin sannkölluð fjölskylduhelgi í friðlandinu Vatnsfirði. Boðið verður upp á sögustundir, náttúruskoðun og ratleik fyrir alla fjölskylduna. Einnig verður farið í fjölskyldugöngur í Náttúruvættið Surtarbrandsgil og skoðað hvernig flóra Íslands var fyrir 11 milljón árum síðan.
Sjá dagskrá hér í viðhengi (.pdf)
Vestfjarðavíkingurinn 2014
Vestfjarðavíkingurinn, keppni sterkustu manna landsins fer fram dagana 10. til 12. Júlí. Keppt verður á eftirtöldum stöðum:
Fimmtudagur 10. Júlí
kl. 11:00 Snæfellsbær, Tröð Hellisandi:
Kútakast, Bryggjupollaburður
kl. 17:00 Bjarkarlundur: Bóndaganga
kl. 19:00 Reykhólar, við félagsheimilið: Steinar upp fyrir höfuð
Föstudagur 11. Júlí
kl. 13:00 Patreksfjörður, Friðþjófs Torgi: Réttstöðulyfta
kl. 17:00 Tálknafjörður, Sundlauginni: Öxulpressur, Tunnuhleðsla
Laugardagur 12. Júlí
kl. 13:00 Búðardalur, við Leifsbúð: Trukkadráttur
kl. 17:00 Búðardalur, við félagsheimilið: Steinatök
Fundur vegna Tálknafjörs
Fundur vegna Tálknafjörs verður á mánudag kl 20 í Vindheimum.
SEEDS kynnir spennandi tækifæri í Svíþjóð og á Spáni
Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS kynna spennandi tækifæri erlendis fyrir ungt fólk á aldrinum 18 - 30 ára um alla Evrópu í samstarfi við Ungmenna- og Erasmus+ áætlanir Evrópusambandsins.
Þátttakendur fá allt að 70% ferðakostnaðar endurgreiddan, auk þess sem þeim er séð fyrir fæði og húsnæði á meðan að verkefninu stendur.
Athugið að meðfylgjandi eru linkar þar sem hægt er að fá ítarlegri upplýsingar um verkefnið.
Umsóknarfrestur er sunnudaginn 22. júní 2014.
Meira
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 634. fundur sveitarstjórnar 9. apríl 2024
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir