A A A

Hópið opnar að nýju

Veitingastaðurinn Hópið í Tálknafirði opnar á ný föstudaginn 1.nóv.2013

Bein útsendin á RISASKJÁ frá viðureign Tálknafjarðarhrepps og Sandgerðis í sjónvarpsþættinum Útsvar, milli kl 20:00 og 21:10. Pizzuhlaðborð og tilboð á barnum. Opið frá: 18.00 til 01:00

 

Hefðbundinn matseðill byrjar laugardagskvöldið 2.nóv.2013 frá 18:00 til 01:00
 

Opið Mán-Fim frá 12:00 til 13:30 og 18:00 til 22:00
Opið Föstudaga frá 12:00 til 13:30 og 18:00 til 01:00
Opið Laugardaga frá 18.00 til 01:00 og Sunnudaga frá 18:00 til 22:00
 

Boltinn í beinni þegar það á við og verður það auglýst síðar.

Sími 456-2777
Hlökkum til að sjá ykkur
Starfsfólk Hópsins

Björgunarsveitin Tálkni gefur endurskinsmerki

Vignir og Lilja ásamt börnum úr barnaskólanum
Vignir og Lilja ásamt börnum úr barnaskólanum
1 af 2

Björgunarsveitin Tálkni færði börnum og starfsfólki í leikskóla og barnaskóla Hjallastefnunar á Tálknafirði endurskinsmerki og mun sveitin einnig færa eldri- borgurum endurskinsmerki þegar þau koma saman í nýju félagsmiðstöðinni. Það voru þau Vignir Arnarsson formaður og Lilja Magnúsdóttir ritari sveitarinar sem heimsóttu skólann og afhentu merkin. 

Íbúafundur

Bæjarstjórn Vesturbyggðar boðar til íbúafundar með íbúum sunnanverðra Vestfjarða og þingmönnum kjördæmisins um málefni Heilbrigðisstofnunar Patreksfjarðar, 30. október kl. 18 í  Félagsheimili Patreksfjarðar.
 

Hvetjum alla til að mæta og sýna stuðning við þetta mikilvæga málefni sem varðar samfélagið allt.
 

Bæjarstjórn Vesturbyggðar.

Fréttatilkynning vegna fyrirhugaðra sameiningu heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum

Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps mótmælir þeim hugmyndum sem komnar eru fram um sameiningu heilbrigðisstofnana  á Vestfjörðum.
 

Hreppsnefnd telur að ekki sé möguleiki að sameina umræddar stofnanir meðan samgöngur eru í ólestri. Framkomnar hugmyndir eru enn ein aðförin að íbúum á Vestfjörðum, þar sem öryggi íbúa með alla heilbrigðisþjónustu er ekki viðunandi. Því hvetur hreppsnefnd Tálknafjarðar ríkisvaldið til að endurskoða framkomnar hugmyndir.

Starfsfólk óskast

Starfsfólk óskast á veitingarstaðinn Hópið í Tálknafirði á  mismunandi vinnutíma við þjónustu- og veitingarstörf.
 
Um er að ræða fjölbreytt störf og sveigjanlegan  vinnutíma við dagvinnu, kvöld og helgarvinnu, ráðið verður sem fyrst.
 
Nánari Upplýsingar veitir Bjarni Einarsson í síma 659-0050

Tálknafjarðarhreppur keppir í Útsvari

Nú styttist í að fulltrúar Tálknafjarðarhrepps mæti Sandgerði í Útsvari, en okkar fólk mun birtast á skjánum þann 1 nóvember.
 

Í liðinu eru: Ársæll Níelsson, Lilja Magnúsdóttir og Þorgils Jónsson.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón