Árshátíð fyrirtækja
Árshátíð fyrirtækja á Tálknafirði verður haldin í íþróttahúsinu laugardaginn 26. Október.
Húsið opnar kl. 19:30 og mun borðhald hefjast hálftíma síðar eða kl.20:00.
Aðgöngumiðar verða seldir í anddyri íþróttahússins föstudaginn 25. október frá kl. 17 til 19.
Miðaverð er 6.000 kr.
Selt verður inn á dansleikinn eftir kl 23:00. Verð á dansleikinn er 2.000 kr.
Aldurstakmark á dansleikinn er 18 ár.
Nefndin
Hollvinir Dunhaga
Markmið Hollvina er að aðstoða við fjármögnun endurbóta og viðhalds húsinu Dunhaga og stuðla að áframhaldandi menningarstarfsemi í húsinu til að tryggja framtíð þess. Jafmframt er markmið samtakanna að safna saman sögu hússins og halda henni til haga.
Hollvinir Dunhaga
rknr. 0153-05-060018
kt. 490812-0240
Sjá Facebooksíðu hollvina Dunhaga
Fjölmenn ráðstefna um fiskeldi á Patreksfirði
Aðstandendur og skipuleggjendur ráðstefnunnar „Fiskeldi í köldum strandsjó Íslands“ eru hæstánægðir með mætingu og viðtökur ráðstefnugesta. Fjölmargir lögðu leið sína á Patreksfjörð og fylltu allt gistirými í bænum svo og á Tálknafirði. Alls komu 170 gestir frá fiskeldisfyrirtækjum, stjórnsýslu, rannsóknastofnunum og frá ýmsum þjónustugreinum og um 130 gestir mættu til hátíðarkvöldverðar á fimmtudagskvöldið. Samhliða ráðstefnunni var haldin vörusýning frá fyrirtækjum frá Íslandi, Noregi og Færeyjum í fremri sal félagsheimilisins.
...Meira
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Sveitarstjórn | 634. fundur sveitarstjórnar 9. apríl 2024
- Sveitarstjórn | 633. fundur sveitarstjórnar 26. mars 2024
- Fræðslunefnd | 17. fundur 13. mars 2024
- Sveitarstjórn | 632. fundur sveitarstjórnar 21. mars 2024
- Sveitarstjórn | 631. fundur sveitarstjórnar 11. mars 2024
- Sjá allar fundargerðir