A A A

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna Alþingiskosninga 27. apríl 2013 er hafin hjá sýslumanninum á Patreksfirði.  Hægt er að kjósa á skrifstofutíma á milli 8:30 - 12:00 og 13:00 - 15:30 virka daga.
 

Sjá meðfylgjandi tilkynningu frá sýslumanni vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem hófst þann 2. mars sl.

Breyting á aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018

Breyting á aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018 vegna afmörkunar vatnsverndar, jarðborun og reiðleiðir í Tálknafirði
 

Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps samþykkti á fundi þann 19. febrúar 2013 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018. Tillagan og meðfylgjandi umhverfisskýrsla var auglýst frá 4. desember 2012 til 16. janúar 2013. Minniháttar breytingar voru gerðar á auglýstri tillögu sem gáfu ekki tilefni til þess að endurauglýsa tillöguna og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér að byggingarfulltrúa Tálknafjarðarhrepps.
 

Indriði Indriðason
sveitastjóri Tálknafjarðarhrepps.

Súpufundur í Sjóræningjahúsinu

Súpufundur í Sjóræningjahúsinu  fimmtudaginn 7. mars, kl. 12:30.

Hrannar Gestsson kynnir starfsemi og aðstöðu Módelsmiðju Vestfjarða. Félagar Módelsmiðjunnar hittast vikulega í kaffistofu gamla Odda og vinna að módelum af ýmsum stærðum og gerðum, aðallega flugmódelum. Hrannar mun sýna nokkur þeirra á súpufundinum.
 

Súpa, brauð og kaffi  1.200 kr.

Spjaldtölvur hafa gefist vel í Tálknafjarðarskóla

Foreldrar barna í Tálknafjarðarskóla kíktu í heimsókn á dögunum og fengu að kynnast starfseminni.
Foreldrar barna í Tálknafjarðarskóla kíktu í heimsókn á dögunum og fengu að kynnast starfseminni.

„Þetta gengur einfaldlega stórkostlega. Að mínu mati eru þetta stórkostlegustu kennslutæki sem völ er á,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir skólastjóri Tálknafjarðarskóla, en allir nemendur á mið- og efsta stigi í skólanum styðjast við Ipad spjaldtölvurnar frá Apple í námi sínu. Verkefnið var styrkt af þróunarsjóði Hjallastefnunnar. „Þetta nýtist okkur sérstaklega vel í tungumálakennslu og stærðfræði og þróunin í hönnun smáforrita er mjög hröð. Því miður hefur þróun íslenskra kennsluforrita ekki verið eins hröð en vonandi verður bætt úr því,“ segir Margrét.

Á dögunum bauð skólinn foreldrum barnanna í heimsókn í skólann til að sýna þeim hvernig spjaldtölvurnar nýtast í skólastarfinu. „Nú sjá þau hvað námið getur verið skemmtilegt,“ segir Margrét.

Frétt tekin af: bb.is


Umsóknir um styrki úr húsafriðunarsjóði 2013

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Húsafriðunarsjóði fyrir árið 2013.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2013. Stefnt er að því að úthlutun liggi fyrir í byrjun maí.

...
Meira

Deiliskipulag Látrabjargs, opið hús á Patreksfirði

28. febrúar nk. kl.18:00 verður opið hús í félagsheimili Patreksfjarðar vegna deiliskipulagsvinnu við Látrabjarg og nágrenni.

Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir land þriggja jarða, Hvallátra, Breiðavík og Keflavík. Á staðnum verða fulltrúar Barrk arkitektastofu sem vinna skipulagið fyrir hönd Vesturbyggðar. Einnig verða starfsmenn Umhverfisstofnunar og Vesturbyggðar sem koma að skipulagsmálunum. Vinnugögn fyrirhugaðs deiliskipulags eru aðgengileg á heimasíðu Vesturbyggðar www.vesturbyggd.is  og hjá skipulagsfulltrúa í síma: 4502300/4502312 eða  tölvupósti á armann@vesturbyggd.is. Einnig er hægt að óska eftir gögnum skriflega hjá undirrituðum.
 

Íbúar og hagmunaaðilar eru hvattir til þess að mæta og gefst þeim tækifæri á að kynna sér skipulagsvinnuna og koma með spurningar og athugasemdir. Til kynningar verða uppdrættir í vinnslu af svæðunum.

 

Vinnugögn tillögunnar má sjá hér

 

Hér má sjá uppbyggingu deiliskipulags

 

Ármann Halldórsson Skipulags -og byggingarfulltrúi Vesturbyggðar

Aðalstræti 63, 450 Patreksfirði.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón