A A A

Leikskólinn opnar 21. ágúst

Iðnaðarmenn vinna a kappi þessa dagana að sköpun leikskólans á nýjum stað. Eins og sést á myndinni, er búið að opna gamla innganginn á fyrstu byggingunni til að leikskólabörnin komist beint í trjágarðinn sem verður aðalleiksvæðið þeirra. Búð er að setja upp stóran trépall og skjólvegg fyrir útileiki og útiverkefni og svo mun leiksvæðið þróast smátt og smátt í vetur. Markmiðið er að fá foreldra, kennara og annað áhugafólk um skólamál í hugmyndavinnu um þessa þróun og fá sérfræðinga í óhefðbundnum leiksvæðum í lið með okkur.
 

Jafnframt er verið að gera góð salerni og skiptiaðstöðu ásamt fatahólfum og öðru sem fylgir smáfólkinu okkar og innan dyra fær leikskólinn gott rými. Á skólasetningardeginum 22. ágúst verður hægt að skoða hina nýju aðstöðu leikskólans og munu uppkomnir Tálknfirðingar án efa kannast við stofurnar sem eitt sinn voru skólarými, eldhús og mötuneyti, urðu því næst geymslur, tónlistarskóli og fleira en er nú fullbúinn leikskóli.
 
Frétt tekin af: hjalli.is/talknafj

Skólasetning 22. ágúst og skóladagatal

Fyrsti skóladagur Tálknafjarðarskóla er miðvikudagurinn 22. ágúst og verður skólinn settur kl 13 í íþróttahúsinu.

Von okkar er að nemendur og foreldrar fjölmenni að setningu þar sem hátíðablær mun ráða ríkjum, nemendur verða  með skemmtiatriði og foreldrafélagið býður stórum sem smáum upp á hressingu.
 

Að skólasetningu lokinni er foreldrum boðið að fylgja börnum  sínum í stofu til að hitta kennarann og skoða bæði skólann og leikskólann sem þá verður tekinn til starfa innan sömu veggja og grunnskólinn - allur Tálknafjarðarskóli undir einu þaki :)
 

Hér má finna skóladagatal komandi skólaárs.

Frétt tekin af: hjalli.is/talknafj

Sjóræningjaskóli opnar á Patreksfirði

Laugardaginn 4. ágúst klukkan 13 verður nýstárlegur skóli opnaður á Patreksfirði, nánar tiltekið í Sjóræningjahúsinu. Um að ræða skóla fyrir verðandi sjóræningja og aðra sem vilja fræðast um ýmislegt er viðkemur sjóferðum. Þar munu nemendur þurfa að leysa verkefni á borð við að velja réttan kost til sjóferðar, rata eftir stjörnunum, hnýta hnúta og ýmislegt fleira. Um sjálfsnám er að ræða en við komu í skólann fá nemendur afhenta verkefnabók sem þeir þurfa að fylla inn í og útskrifast þeir þegar öll verkefnin í bókinni hafa verið leyst.

 

Sjóræningjaskólinn verður opinn alla daga til 3. september, frá klukkan 11-18.

 

Skólasetningin stendur yfir frá klukkan 13-18 og í tilefni opnunarinnar verður öllum nemendum boðið upp á hressingu við útskrift.

 

Menningarráð Vestfjarða styrkir gerð skólans.

Fundur í hreppsnefnd

444.fundur hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn mánudaginn 30.júlí kl. 17:00 á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps.

Sjá fundarboð hér.

 
Oddviti.

Tálknafjör

DAGSKRÁ TÁLKNAFJÖRS 27. – 29. JÚLÍ 2012

...
Meira

Hollvinir Dunhaga

Stofnfundur Hollvina Dunhaga verður haldinn sunnudaginn 29. júlí kl. 14.00 í Dunhaga, Tálknafirði í tengslum við Tálknafjör.
 
Allir velunnarar Dunhaga eru boðnir velkomnir á stofnfundinn. Þeir sem ekki geta mætt á fundinn geta gerst félagar með því að senda tölvupóst á netfangið dunhagihollvinir@gmail.com eða hringt í Kristjönu Andrésdóttur í síma 861-7077,  Aðalstein Magnússon í síma 861-2633 og Lilju Magnúsdóttur í síma 895-2947.

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón