A A A

Frestun á fundi hreppsnefndar

444.fundur hreppsnefndar sem halda átti 11.júlí 2012 er frestað og verður haldinn þriðjudaginn 24.júlí kl. 17:00 á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps.

 

Dagskrá auglýst síðar.

                                                                                                                                                                                    Oddviti.

Vestfjarðavegur (60) milli Bjarkalundar og Melaness í Reykhólahreppi, drög að tillögu að matsáætlun

1 af 2

Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vestfjarðavegi (60) milli Bjarkalundar og Melaness í Reykhólahreppi. Núverandi vegur er 41,6 km langur en nýr vegur verður 19,7-21,7 km langur, háð leiðarvali. Áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif þriggja leiða, þ.e. D1, H og I.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur um sunnanverða Vestfirði.
 

Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á vef Vegagerðarinnar, samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
 

Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur til 7. ágúst 2012. Athugasemdir skal senda með tölvupósti til kristjan.kristjansson@vegagerdin.is eða helga.adalgeirsdottir@vegagerdin.is eða til Vegagerðarinnar, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík.
 

Drög að tillögu að matsáætlun (.pdf)

Teikningar (.pdf)

Vestfjarðavíkingurinn 2012

Vestfjarðavíkingurinn er 20 ára !!!


Keppni sterkustu manna landsins fer fram dagana 4 til 7 júlí.


Keppt verður á eftirtöldum stöðum:

...
Meira

Auglýsing um kjörfund í Tálknafjarðarhreppi

Forsetakosningar laugardaginn 30.júní 2012

verða í Tálknafjarðarskóla, grunnskóladeild.
Athugið gengið inn í norðurenda, bókasafnsmegin.

 

Kjörfundur verður settur

kl. 10:00 og stendur til kl. 18:00.

 

Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki og framvísa þeim ef um er beðið.

 

 

Kjörstjórn Tálknafjarðarhrepps.

Til hunda- og kattaeigenda á Tálknafirði

Þriðjudaginn 26.júní n.k.  verður Sigríður Inga dýralæknir stödd hér á Tálknafirði m.a. til að framkvæma hunda- og kattahreinsun. Sigríður verður með aðstöðu í skúrnum við Móberg frá kl. 12:00 – 14:00
 

Innifalið í leyfisgjöldum er hreinsun og ábyrgðartrygging,  óski fólk eftir bólusetningu eða annarri meðferð þarf að panta  fyrirfram í síma 861-4568 .  Eigendur dýra þurfa að greiða   sérstaklega fyrir þá þjónustu  og vakin er athygli á að ekki er tekið  við kortum. 

 
Vakin er athygli á því að vanræki eigendur dýra þessa skyldu sína er það skýlaust brot  á samþykktum um hunda og kattahald í Tálknafjarðarhreppi.
 

Eigendum óskráðra dýra er bent á að kynna sérsamþykktir og gjaldskrár um hunda- og kattahald í sveitarfélaginu.
 

  • Samþykkt um kattahald frá 1.júní 2007
  • Samþykkt um hundahald frá 14. febrúar 2007
    Gjaldskra fyrir kattahald 
    Gjaldskrá fyrir hundahald
     
  • Þá er sérstök athygli vakin á eftirfarandi málsgrein :

    „Skrá á dýr sín innan þriggja mánaða frá því að þau koma inn á heimilið.  Þeir sem hafa vanrækt þessa skyldu sína er bent á að skrá dýr sín strax, að öðrum kosti að eiga á hættu að dýrin verði fjarlægð eins og samþykktir kveða á um.“

     

                                                                               Oddviti

    Skólaakstur í framhaldsdeild FSN á Patreksfirði

    Fjölbrautaskóli Snæfellinga
    Fjölbrautaskóli Snæfellinga

    Fjölbrautaskóli Snæfellinga og sveitarfélagið Vesturbyggð óska eftir tilboði í skólaakstur fyrir nemendur framhaldsdeildar FSN á Patreksfirði og Bíldudalsskóla skólaárin 2012-2014.

    Tilboð óskast send til Jóns Eggerts Bragasonar, skólameistara, á netfangið joneggert@fsn.is og afrit til Þóris Sveinssonar, skrifstofustjóra Vesturbyggðar, á netfangið thorir@vesturbyggd.is eða í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfjörður. Frestur til að skila inn tilboðum er til 27. júní 2012. Fyrsti skóladagur haustannar er 22. ágúst og fyrsta ferð í Grundarfjörð er áætluð 27. ágúst til 31. ágúst. Frekari upplýsingar gefur skólameistari í síma 430 8400.

    ...
    Meira
    Eldri færslur
    « Apríl »
    S M Þ M F F L
      1 2 3 4 5 6
    7 8 9 10 11 12 13
    14 15 16 17 18 19 20
    21 22 23 24 25 26 27
    28 29 30        
    Næstu atburðir
    Vefumsjón