Velkominn í vinahópinn, Ögmundur
„Við bjóðum ráðherrann hjartanlega velkominn í vinahópinn okkar enda vita allir sannir vinir Vestfjarða að bið eftir láglendisvegi tefur frekari atvinnuuppbyggingu á svæðinu, skerðir lífsgæði íbúanna og getur hreinlega orðið til þess að byggð leggist af. Vonandi hafa aðrir ráðherrar í núverandi ríkisstjórn sama skilning á aðstæðum okkar og innanríkisráðherra.“
Þetta segja Andrea Björnsdóttir, oddviti Reykhólahrepps, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps, í grein í Morgunblaðinu í dag.
Meira