A A A

Ferðaárið 2012 lofar góðu

Straumur erlendra ferðamanna til Vestfjarða hefur aukist jafnt og þétt.
Straumur erlendra ferðamanna til Vestfjarða hefur aukist jafnt og þétt.

Ferðaárið 2012 lofar góðu og mikil aukning er á straumi erlendra ferðamanna um landið, en tæplega 28 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í febrúar eða fimm þúsund fleiri en í febrúar 2011. Þetta er 22% aukning milli ára, að því er fram kemur á vef Ferðamálastofu. Þá fjölgaði erlendum ferðmönnum einnig í janúar eða sem nemur 17% milli ára. Þessa aukningu má greinilega sjá í fjölda gistinátta á samanlögðu svæði Vestfjarða og Vesturlands, en þar fjölgaði gistinóttum erlendra ferðamanna um 33% í janúar samanborið við janúar 2011. Fjöldi erlendra ferðamanna til Vestfjarða hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin ár og áætlar Markaðsstofa Vestfjarða að fjöldi ferðamanna til Ísafjarðar hafi rúmlega tvöfaldast frá árinu 2008.  Sjá nánar á heimasíðu Ferðamálastofu.

Frétt tekin af bb.is

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars verður boðið upp á spennandi viðburði í Reykjavík og á Akureyri. Jafnréttisstofa hvetur alla til að kynna sér viðburði dagsins. Í boði er fjölbreytt dagskrá um jafnréttismál.

...
Meira

Bílaþvottur á Patreksfirði

10. bekkur  mun bjóða uppá  bílaþvott  laugardaginn 10. mars. Þvottur fer fram í  áhaldahúsi Vesturbyggðar og aðstöðu Vegagerðarinnar   Byrjað verður kl.10:00

...
Meira

Starfsmaður við félagsstarf eldri borgara

Starf aðstoðarmanns í félagsstarfi aldraðra í Eyrarseli á Patreksfirði er laust til umsóknar. Starfsmaður starfar náið með forstöðumanni og mun leiða einstök verkefni innan félagsstarfsins.
Ráðið verður í starfið sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað.
Allar frekari upplýsingar fást hjá félagsmálastjóra í síma 450 2300 eða elsa@vesturbyggd.is

...
Meira

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki í tveimur flokkum á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga vegna ársins 2012. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli. 

...
Meira

Tálknafjörður - Mekka fiskeldis á Íslandi?

1 af 4

Ný útgáfa af Fiskeldisfréttum


Allt frá árinu 2009 hafa Fiskeldisfréttir verið gefnar út og þá sem hluti af Sjávarútvegurinn – vefrit um sjávarútvegsmál.
Í blaðinu má finna skemmtilegt yfirlit um fiskeldi í Tálknafirði.

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón