Skólamáltíđir 2011-2012
Samið hefur verið við Veitingastofuna Tígul ehf, um umsjón skólamáltíða skólaárið 2011 – 2012.
Skólastjóri mun senda út skráningarblöð fyrir grunnskóladeild og börn sem eru í vistun á leikskóladeild yfir hádegismat eru skráð sjálfkrafa í mat.
Verð á skólamáltíðum verður sem hér segir:
Nemendur Grunnskóla Tálknafjarðar kr. 370
Nemendur Leikskólans Vindheima þriggja ára og eldri kr. 370
Nemendur Leikskólans Vindheima yngri en þriggja ára kr. 300
Miðað er við afmælisdag nemenda á leikskólanum. Sendur verður innheimtuseðill í byrjun hvers mánaðar. Innheimta fyrir máltíðir leikskólabarna mun nú verða á hendi sveitarfélagsins og innheimtist með leikskólareikningum í hverjum mánuði. Tilkynning um a.m.k. viku fjarveru eða skráning úr skólamáltíðum verður að berast skrifstofu Tálknafjarðarhrepps með viku fyrirvara með tölvupósti á talknafjordur@talknafjordur.is.
Vakin er athygli á því að ganga þarf frá skuld vegna skólamáltíða frá fyrra skólaári sbr. 5. gr. reglna um skólamáltíðir: „Hafi greiðsla fyrir skólamáltíð ekki borist á eindaga sendir verktaki aðvörun. Hafi vanskil staðið í einn mánuð frá eindaga að telja fer krafan til sveitarfélagsins, sem sér um innheimtu kröfunnar og missir þá nemandi rétt sinn til skólamáltíða.“
Ef um forföll er að ræða, t.d. vegna veikinda, má nálgast máltíð barnsins í matstofu grunnskóladeildar á matmálstíma og taka með heim. Þá þarf að koma með ílát undir matinn því einnota umbúðir verða ekki í boði enda umhverfisvænt í anda Grænfánans og einkunnarorða skólans.
Meðfylgjandi eru reglur sveitarfélagsins er varða skólamáltíðir. Foreldrar/forráðamenn nemenda eru beðnir að kynna sér þær vel.
