A A A

Yfirflokkstjóri og flokksstjóri hjá vinnuskóla

Tálknafjarðarhreppur leitar að einstaklingum til starfa hjá vinnu­skóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. Auglýst er eftir yfirflokkstjóra og flokkstjóra. Umsóknarfrestur er til 3. maí 2024.

...
Meira

Tálknfirðingar plokka

Stóri plokkdagurinn á Tálknafirði fer fram sunnudaginn 28. apríl 2024. Tálknfirðingar munu hittast á Lækjartorgi við hliðina á búðinni kl. 13:00 og skipta sér niður á svæði til að plokka. Gert er ráð fyrir að plokkinu verði lokið rétt fyrir kl. 14:00 og verður endað með því að bjóða upp á köku og drykki. Það er Grænfánanefnd Tálknafjarðarskóla og Tálknafjarðarhreppur sem standa að plokkdeginum í sameiningu.

...
Meira

Laus störf í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar

Tálknafjarðarhreppur auglýsir laus störf í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar.


 


Leitað er að einstaklingum með góða þjónustulund og getu til að sýna frumkvæði í starfi. Kunnátta í a.m.k. einu tungumáli auk íslensku er kostur. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og þurfa að standast hæfnispróf sundstaða.


 


Starfsfólk í Íþróttamiðstöð sinnir almennri afgreiðslu, þrifum, sundlaugarvörslu auk eftirlits með íþróttahúsi og klefum. Unnið er á vöktum dag, kvöld og helgar.. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní 2024 eða eftir samkomulagi. Bæði er hægt að sækja um framtíðarstarf sem og starf við sumarafleysingar. Starfsfólk Íþróttamiðstöðvar Tálknafjarðar tilheyrir fjölskyldusviði Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

...
Meira

Gefur þú séstakan kost á þér í heimastjórn?





Samhliða kosn­ingum til sveit­ar­stjórnar í sameinuðu sveit­ar­fé­lagi Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar þann 4. maí næst­kom­andi verða kosnir full­trúar í heima­stjórnir. Hægt er að kjósa um alla íbúa hvers svæðis, en einstak­lingum sem vilja gefa sérstak­lega kost á sér til heima­stjórnar býðst að kynna sig og sín áherslumál í gegnum heima­síður sveit­ar­fé­lag­anna.


Kosið verður í heimastjórnir sama dag og kosið verður til sveitarstjórnar og eru tveir fulltrúar kosnir á hverjum stað. Heimastjórnirnar verða fjórar:



  • Heimastjórn Arnarfjarðar

  • Heimastjórn Tálknafjarðar

  • Heimastjórn Patreksfjarðar

  • Heimastjórn Rauðasandshrepps og Barðastrandar


Allir íbúar hvers svæðis eru í framboði og kýs hver íbúi einn einstakling á því svæði sem hann býr. Þeir tveir sem fá flest atkvæði á hverju svæði munu sitja í heimastjórn fyrir sitt svæði næstu tvö árin eða þar til kosið verður næst til sveitarstjórnar.





...
Meira

Auglýsing um 635. fund sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps

Boðað hefur verið til 635. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði, þriðjudaginn 23. apríl 2024 og hefst kl. 17:00.

...
Meira

Auglýsing um 634. fund sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps

Boðað hefur verið til 634. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði, þriðjudaginn 9. apríl 2024 og hefst kl. 17:00.

...
Meira
Síða 1 af 275
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón