Íþróttamiðstöðin á Tálknafirði.
Ungmennafélag Tálknafjarðar.








 

 

 

       

06. janúar 2010 | 16:25

Námsstefna um fjármálareglur sveitarfélaga og tengsl við hagstjórn ríkisins.

Námsstefna um fjármálareglur sveitarfélaga verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík 22. janúar næstkomandi í samstarfi samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál og Evrópuráðsins. Fjallað verður um fjármálareglur sveitarfélaga og tengslin milli hagstjórnar ríkis og sveitarfélaga.

 

Námsstefnan er ætluð framkvæmdastjórum og fjármálastjórum sveitarfélaga og öðrum sérfræðingum sem starfa á sviði fjármála fyrir ríki eða sveitarfélög á Íslandi. Þá er sérfræðingum sem starfa á þessu svið í Evrópu einnig boðið að koma.

 

Deginum áður 21. janúar er vinnufundur fyrirlesara og samráðsnefndar um efnahagsmál auk nokkurra annara fulltrúa.

 

 

Ráðstefnugjald er 15.000 kr. og er innifalið í því hádegisverður og kaffi og meðlæti.

 

Ráðstefnan fer fram á ensku.

 

Skráið ykkur á ráðstefnuna á eftirfarandi síðu:

https://asp.artegis.com/lp/FRLA/FRLA10

 

Dagskráin og fyrirlesarar fylgja hér einnig með í viðhengi.

 

 

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið 


 



     






 

Tálknafjarðarhreppur - Kt. 640269-6779 - Miðtúni 1 - 460 Tálknafirði
Sími: 456 2539 - Fax: 456 2589 - Netfang: talknafjordur (hjá) talknafjordur.is