Verkefnið Focus Westfjords fer af stað aftur núna í þessari viku, en Matt Willen enskuprófessor er á leið til landsins og lendir hann á miðvikudagsmorgun og er þetta í 6. sinn sem hann kemur til Íslands. Verkefnið gengur vel og hafa aðstandendur þess, þeir Matt og heimamaðurinn Ágús G. Atlason áhugaljósmyndari fundið verulega fyrir áhuga heimamanna á Verkefninu. Allir virðast boðnir og gefnir til að hjálpa til við verkefnið og vilja þeir koma á framfæri þakklæti til Vestfirðinga, án þessa stuðnings gengi verkefni af þessari stærðargáðu ekki upp. Stefnt er á suðursvæði Vestfjarða og er verið að hugsa þá um Bíldudal, Tálknafjörð og Patreksfjörð í þeim skilningi og sveitirnar í kring. Verkefni þetta hlaut styrk frá Menningarráði Vestfjarða 2009.