Íþróttamiðstöðin á Tálknafirði.
Ungmennafélag Tálknafjarðar.








 

 

 

       

12. janúar 2010 | 16:11

Vefverslun með íslenskt handverk og náttúruvörur
Vefverslunin Litlu búðirnar hóf starfsemi sína um jólin. Hér er um að ræða vefverslun með íslenskt handverk og náttúruvörur. Eigandi Lb er Áskell Þórisson sem um árabil ritstýrði Bændablaðinu en er nú útgáfu- og kynningarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands. Nú hafa liðlega þrjátíu framleiðendur skráð sig inn með framleiðsluvörur af  ýmsu tagi. Vörurnar eru flokkaðar niður í átta litlar “búðir”. Stefnt er að því að vera með 60-70 handverksmenn í Lb þannig að enn er pláss fyrir gott fólk.

Handverksmenn þurfa ekki að greiða fyrir það að vera á vef Lb en tekjur Lb byggja á álagningu á seldar vörur. Nú er unnið að því að þýða vefinn á þýsku og segir Áskell að því verki ljúki vonandi í apríl. Þá er á stefnuskránni að snara vefnum á ensku. “Það skiptir öllu að vera með svona vef á þýsku, ensku og t.d. dönsku en það er dýrt að koma þessu á aðrar tungur,” segir Áskell og bætir því við að á vefnum sé kaupendum sagt að þeir geti þurft að bíða í allt að þrjár vikur eftir að fá vöruna. “Framleiðendur þurfa tíma til að búa til vörurnar – og ég hvet fólk eindregið að framleiða ekki á lager vegna Lb. Lagerhald er dýrt og Lb liggja ekki með lager. Allt byggir þetta á því að framleiðendur búi til vörur eftir pöntunum.”

Áskell tekur sjálfur myndir af þeim hlutum sem eru seldir í Lb. “Góðar myndir skipta höfuðmáli. Ég segi við þá sem vilja kaupa í Lb að þeir muni ekki fá nákvæmlega eins vöru og þeir sjá á myndunum, en framleiðendur fari eins nálægt því og þeir geti. Vörur í Litlu búðunum eru handverk. Hver hlutur er einstakur,“ segir Áskell.

Sími Áskels eftir kl. 17 á daginn er 843 5307. 
Netfangið er ask@simnet.is 
Slóðin á Lb er www.litlubudirnar.is




     






 

Tálknafjarðarhreppur - Kt. 640269-6779 - Miðtúni 1 - 460 Tálknafirði
Sími: 456 2539 - Fax: 456 2589 - Netfang: talknafjordur (hjá) talknafjordur.is