Íþróttamiðstöðin á Tálknafirði.
Ungmennafélag Tálknafjarðar.








 

 

 

       

13. janúar 2010 | 12:49

Sögufélag í Sjóræningjahúsi
Sjóræningjahúsið á Patreksfirði heldur áfram með súpufundi í hádeginu á fimmtudögum og verður sá næsti fimmtudaginn 14. janúar. Þar mun Hjörleifur Guðmundsson kynna Sögufélag Barðastrandarsýslu, sem meðal annars sér um útgáfu á Árbók Barðastrandarsýslu. Árbókin kom fyrst út 1948 að frumkvæði Jóhanns Skaptasonar, sýslumanns á Patreksfirði og skipaði hann fyrstu ritstjórn ásamt Jónasi Magnússyni skólastjóra á Patreksfirði og Sæmundi Ólafssyni forstjóra á Bíldudal. Útgáfa árbókarinnar lá niðri frá því um 1980 og til 2002 þegar Sögufélagið tók við útgáfunni í samvinnu við Vestfirska forlagið. 

bb.is



     






 

Tálknafjarðarhreppur - Kt. 640269-6779 - Miðtúni 1 - 460 Tálknafirði
Sími: 456 2539 - Fax: 456 2589 - Netfang: talknafjordur (hjá) talknafjordur.is