Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskara sveitarfélaga og Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV) boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið.
Fundurinn verður haldinn í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði, föstudaginn 15. janúar og hefst klukkan 16.30. Fundurinn er einnig haldinn með aðstoð fjarfundabúnaðar í Grunnskólanum á Reykhólum og í Skor, þróunarsetri Patreksfirði. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Dagskrá fundarins er hér á eftir.
Dagskrá:
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ávarp.
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, ávarp.
Anna Guðrún Edvardsdóttir, formaður stjórnar FV, Staða sameiningarmála á Vestfjörðum.
Flosi Eiríksson, formaður samstarfsnefndar, kynning á verkefninu: “Nýjar leiðir í eflingu sveitarstjórnarstigsins”.
Sigurður Tómas Björgvinsson, starfsmaður sameiningarnefndar: “Lærum af reynslunni – nýjar áherslur í sameiningarmálum”.
Fundarstjóri Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri FV