Kynningafundur á Hópinu Tálknafirði
Föstudaginn 22. janúar kl. 20.00
Á fundinum mun Jóhann Svavarsson kynna nýstofnað ferðaþjónustufyrirtæki Umfari ehf.
Umfar ehf. mun verða með náttúrutengda ferðaþjónustu og leiðsögn um Vestur-Barðastrandasýslu. Á fundin mæta þeir sem að fyrirtækinu standa og verða plön fyrirtækisins kynnt.
Leitað er eftir samstarfi við þá aðila sem eru með rekstur ferðaþjónustu á svæðinu.
Að lokinni kynningu verða almennar umræður.
Ferðaþjónustuaðilar á svæðinu eru hvatir til að mæta, svo og þeir sem áhuga hafa á uppbyggingu ferðaþjónustu.
Ferðamálafélag V-Barð