28. janúar 2010 | 11:54
Í dag hefst utankjörfundar atkvæðagreiðsla um Icesave-skuldbindingarnar, en þjóðaratkvæðagreiðslan sjálf fer fram laugardaginn 6. mars. Kjósendum sem ekki geta kosið á kjördag, er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá og með deginum í dag til kjördags. Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á erlendri grundu hefst sama dag á vegum utanríkisráðuneytisins sem mun kynna fyrirkomulag þar að lútandi.
Nánar á
kosning.is
bb.is