Íþróttamiðstöðin á Tálknafirði.
Ungmennafélag Tálknafjarðar.








 

 

 

       

16. febrúar 2010 | 18:43

Ekkert fiskiskip fær meira en 15 þíg.tonn
Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps hefur lagt til að við úthlutun verði tekið út ákvæði í reglugerð þar sem segir við úthlutun skal ekkert fiskiskip hljóta meira en 15 þorskígildislestir. Hreppsnefnd leggur til að við úthlutun til fiskiskipa verði stuðst við reglugerð nr. 82/2010 frá 29. janúar 2010, en vill nýta sér ákvæði í 2. gr. reglugerðarinnar og setja eitt sérstakt skilyrði sem er að út úr 4. gr. reglugerðarinnar verði tekið : við úthlutun skal ekkert fiskiskip hljóta meira en 15 þorskígildislestir. Samþykkt með atkv. GÓ, BB, BGG og MW.
Þar segir að ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórna að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.

bb.is



     






 

Tálknafjarðarhreppur - Kt. 640269-6779 - Miðtúni 1 - 460 Tálknafirði
Sími: 456 2539 - Fax: 456 2589 - Netfang: talknafjordur (hjá) talknafjordur.is