17. febrúar 2010 | 11:16
Málþing um atvinnusköpun vestfirskra kvenna verður haldið í húsnæði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Ísafirði á laugardag. Fyrri hluti fundarins verður sendur í fjarfundabúnaði til Patreksfjarðar. Allar konur eru velkomnar sem ýmist eru í atvinnurekstri eða ganga með góða hugmynd um atvinnusköpun á Vestfjörðum. Málþingsstjóri verður Inga Á. Karlsdóttir. Málþingið verður sett kl 10. Meðal þeirra sem flytja erindi á málþinginu eru Birna Lárusdóttir úr fagráði kvenna, Guðjón Már Guðjónsson, stofnandi Hugmyndaráðuneytisins. Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical, Sólrún Sverrisdóttir og Svanhildur Sigurðardóttir og Þóranna Jónsdóttir frá Auði Capital. Málþingið verður síðan slitið með léttum veitingum kl 15.
Allar áhugasamar konur eru hvattar til að skrá sig til þátttöku hjá Ásgerði Þorleifsdóttur, hjá Atvest á netfangið
asgerdur@atvest.is eða í síma 450-3053. Þátttökugjald er 1.000 kr. en hádegisverður og kaffi er innifalið í gjaldinu. Þátttakendur í fjarfundi á Patreksfirði greiða ekkert gjald. Málþingið er haldið á vegum Fagráðs Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða um atvinnusköpun vestfirskra kvenna en í ráðinu sitja: Berglind Hallgrímsdóttir, Birna Lárusdóttir, Guðfinna Bjarnadóttir, Inga Á. Karlsdóttir og Þóranna Jónsdóttir.
Málþingið er styrkt af menntamálaráðuneytinu, Nýsköpunarmiðstöð, Vaxvest, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað, Tálknafjarðarhreppi, Íslandssögu, HG, Álfsfelli, Sparisjóði Keflvíkinga, Íslandsbanka, Hótel Ísafirði og Landsbanka Íslands.
Hægt er að sjá dagskránna og nánari upplýsingar
hér.
bb.is