Minjasafn Egils Ólafssonar auglýsir eftir safnstjóra frá 1. mars 2010. Um framtíðarstarf er að ræða.
Leitað er eftir starfskrafti sem hefur háskólamenntun í menningarsögu eða tengdum greinum. Þekking á söfnum æskileg, sem og áhugi á safnamálum, hæfni í mannlegum samskiptum, þekking á rekstri fyrirtækja, sjálfstæðum vinnubrögðum, ásamt skipulagshæfileikum.
Safnstjóri annast daglegan rekstur, fjárreiður og bókhald safnsins, ásamt starfsmannahaldi. Safnstjóri skal hafa búsetu í Örlygshöfn.
Laun samkvæmt kjarasamningi Fræðagarðs.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda til formanns stjórnar, Guðmundar Sævars Guðjónssonar, Kríubakka 4, 465 Bíldudal fyrir 24. febrúar 2010. Jafnframt veitir hann allar upplýsingar um starfið í síma 456 2136 eftir kl. 20:00 á kvöldin.
