Yfirlit um niðurstöður fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árið 2010 er birt í meðfylgjandi vefriti Hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Niðurstöður liggja fyrir frá sveitarfélögum þar sem búa 97,9% íbúa landsins. Hér eru birtar niðurstöður fyrir A hluta sveitarsjóða eða þann hluta af starfsemi sveitarfélaga sem að meginuppistöðu til er fjármagnaður með skatttekjum. Til frekari upplýsingar er svetiarfélögunum skipt niður í fjóra flokka. Þeir eru: Reykjavíkurborg, höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur, vaxtarsvæði og önnur sveitarfélög. Í ljós kemur að verulegur munur er á stöðu sveitarfélaga innan einstakra flokka í ýmsu tilliti.
Afgreiðsla sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun þýðir að með henni er tekin formleg ákvörðun um ráðstöfun fjárheimilda á fjárhagsárinu. Ef breyta skal út frá fjárhagsáætlun verður það einungis gert með formlegri ákvörðun sveitarstjórnar samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Ef auka skal útgjöld miðað við samþykkta fjárhagsáætlun þá skal liggja ljóst fyrir hvernig þau verða fjármögnuð.