Nú hefur tekið gildi nýtt fyrirkomulag er varðar fargjaldaafslætti með ferjunni Baldri fyrir fjölskyldufólk og einstaklinga. Ástæður breytingana hefur verið fjölyrt um áður en reynt hefur verið af hálfu útgerðar ferjunnar að koma málum þannig fyrir að kostnaður dreifist sem mest með hliðsjón af notkun hvers og eins.
Fleiri en einn í fjölskyldunni geta notað sama kortið með því t.d. að fá fleiri farmiða en nota á hverju sinni út á kortið. Ef farþegar t.d. sem eru með bíl eru með farmiða er næganlegt að panta far fyrir bílinn en þá ekki nauðsynlegt að koma við í farmiðasölu ef búið er að taka út nægilega marga farmiða. Sé svo, er mjög gott að taka það fram við afgreiðslufólk þegar pantað er. Rétt er að benda að nauðsynlegt er að bóka bíla í öllum tilfellum.
Þá viljum við benda þeim notendum á sem nota ferjuna reglulega að fá sér afsláttarkort fyrir sumarið þar sem búast má við að sumarfargjald verði nokkru hærra en vetrarfargjald en kortin gilda samt allt tímabilið þrátt fyrir breytilegt fargjald án viðbótargreiðslu.
Við sendum með þessu nokkrar gagnlegar upplýsingar fyrir viðskiptavini okkar til að sem best gangi að tileinka sér þetta nýja kerfi.
Við teljum að þegar grant er skoðað á að vera hægt að fá út úr þessu nýja kerfi hagstæðara fargjald að meðaltali en gefst með gamla kerfinu.
Með bestu kveðju.
Starfsfólk Sæferða.
Afsláttakort, Ferjan Baldur.
Fyrir einstaklinga og fjölskyldur. (.pdf)
Ferjan Baldur.
Reglur um notkun afsláttakorta. (.pdf)
Verðskrá einingakorta. Stykkishólmur – Flatey. (.pdf)
Verðskrá einingakorta, Stykkishólmur – Brjánslækur. (.pdf)