Íþróttamiðstöðin á Tálknafirði.
Ungmennafélag Tálknafjarðar.








 

 

 

03. mars 2010 | 12:32
| Fréttir

Styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða
Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar 2010 og er umsóknarfrestur til sunnudagsins 28. mars næstkomandi.

Bent er sérstaklega á nánari upplýsingar í úthlutunarreglum sem samþykktar hafa verið fyrir þessa úthlutun, en þær er að finna á vef Menningarráðsins á slóðinni www.vestfirskmenning.is. Einnig gefur menningarfulltrúi Vestfjarða allar nánari upplýsingar í s. 891-7372 eða menning@vestfirdir.is.

Samkvæmt ákvörðun stjórnar Menningarráðs Vestfjarða verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur við fyrri úthlutun ársins 2010:
   a. Eflingu samstarfs á sviði menningarmála á svæðinu
   b. Nýsköpun í verkefnum tengdum menningu
   c. Fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við menningarstarf á svæðinu
   d. Eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og ferðatengdrar menningarstarfsemi

Á síðasta ári, 2009, fengu samtals 85 verkefni styrki frá Menningarráði Vestfjarða við tvær úthlutanir, á bilinu 50 þúsund til 1,4 milljónir hvert verkefni. Það ár bárust Menningarráðinu samtals 178 umsóknir um stuðning við fjölbreytt menningarverkefni.

vestfirskmenning.is


       


     






 

Tálknafjarðarhreppur - Kt. 640269-6779 - Miðtúni 1 - 460 Tálknafirði
Sími: 456 2539 - Fax: 456 2589 - Netfang: talknafjordur (hjá) talknafjordur.is