Ákveðið hefur verið að ferjan Baldur fari eina aukaferð helgina 13. – 14 febrúar. Tekið skal fram að þessi ferð er ekki farin að neinu leiti með stuðningi Vegagerðarinnar. Hér er um að ræða ferð sem útgerðin ákvað að setja á af ýmsum samverkandi ástæðum.
Ferðir þessa helgi verða sem hér segir.
Föstudagur 12. feb.: Samkvæmt áætlun.
Laugardagur 13. feb.: Frá Stykkishólmi kl 15:00
Sunnudagur 14. feb.: Frá Brjánslæk kl.: 12:00 og aftur kl. 18:00
Frá Stykkishólmi kl.: 15:00
Komið verður við í Flatey ef með þarf á laugardeginum en að öðru leiti eru viðkomur eftir áætlun.
Upplýsingar og panntanir.:
Starfsfólk Sæferða.