A A A

Starfsmaður í félagsmiðstöðinni Tunglinu

Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir starfsmanni í félagsmiðstöðina Tunglið á Tálknafirði.
 

Starfið felst í að aðstoða við skipulag á innra starfi Tunglsins. Einnig sér starfsmaður um þrif á félagsmiðstöðinni. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 7.-10. bekk.
 

Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburðir eru haldnir einu sinni í mánuði.


Hæfniskröfur

  • Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri

  • Reynsla í vinnu með unglingum æskileg

  • Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði

  • Áhuga fyrir að efla unglingastarf á svæðinu æskilegur

 

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá. Tálknafjarðarhreppur áskilur sér rétt til að hafa öllum umsóknum.
 

Frekari upplýsingar veitir Hafdís Helga Bjarnadóttir, tómstundafulltrúi í gegnum netfangið it@vesturbyggd.is.
 

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með föstudgsins 12. janúar 2024 og umsóknareyðublað er að finna á talknafjordur.is.

 

Umsóknir skulu berast á netfangið it@vesturbyggd.is

Starf hafnarvarðar

Tálknafjarðarhreppur auglýsir laust til umsóknar starf hafnarvarðar við Tálknafjarðarhöfn. Um er ræða hlutastarf sem felur í sér bakvaktir að jafnaði aðra hverja helgi.

 

Starfið felur í sér hafnarvörslu, vigtun og þjónustu við viðskipavini hafnarinnar ásamt ýmsum öðrum verkum sem til falla á höfninni. Starfið er lifandi og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi.

  • Hafnargæslumannsréttindi í hafnarvernd kostur.

  • Vigtarréttindi eru æskileg og þarf starfsmaður að vera tilbúinn að sækja námskeið vigtarmanna séu réttindi ekki fyrir hendi.

  • Almenn ökuréttindi.

  • Góð íslenskukunnátta og geta til samskipta á ensku.

  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

 

Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

 

Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 20. desember 2023. Einstaklingar af öllum kynjum er hvattir til þess að sækja um starfið. Skírteini til staðfestingar prófum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

 

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri í síma 450-2500 eða sveitarstjori@talknafjordur.is

 

Umsóknareyðublöð er að finna á talknafjordur.is og skila skal umsóknum á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði.

 

Lausar stöður í Tálknafjarðarskóla

Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki, með 40 nemendur. Í skólanum fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.
 

Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþróttaálfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann allan af skipulögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri.

 

Tálknafjarðarskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmönnum með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi. Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður:

 

Leikskólakennari  (100% starfshlutfall) 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í leikskóla

  • Reynsla af kennslu á leikskólastigi

  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum

  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum

  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hefur hreint sakavottorð

 

EÐA

 

Stuðningur á leikskóla (100% starfshlutfall) 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla í vinnu á leikskóla er kostur

  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum

  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum

  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hefur hreint sakavottorð

 

Ræsting (50% starfshlutfall) 

Um er að ræða almennar ræstingar á skólahúsnæðinu, vinnutími samkvæmt samkomulagi.

  • Íslenskukunnátta kostur

  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri

 

Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
 

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
 

Umsókn sendist á birna@talknafjardarskoli.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Ráðið verður í stöðurnar eftir samkomulagi. 
 

Nánari upplýsingar um störfin veitir Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, skólastjóri, í síma 450-2522, netfang: birna@talknafjardarskoli.is

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina og áskilur stofnunin sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknarfrestur til 8. nóvember 2023

Laus staða í Tálknafjarðarskóla

Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki, með 45 nemendur. Í skólanum fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli. 

Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþróttaálfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann allan af skipulögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri.

 

Tálknafjarðarskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmönnum með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi. Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður:

 

Umsjónarkennari grunnskóla (100% starfshlutfall) 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla

  • Reynsla af kennslu á grunnskólastigi

  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum

  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum

  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hefur hreint sakavottorð

 

Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
 

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. 

Umsókn sendist á birna@talknafjardarskoli.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Ráðið verður í stöðuna sem fyrst eða eftir samkomulagi.
 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, skólastjóri, í síma 456-2537, netfang: birna@talknafjardarskoli.is
 

Umsóknarfrestur er til og með 25.08 2023.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón