A A A

Heilsufarsmæling á Tálknafirði

Heilsufarsmæling á Tálknafirði, miðvikudaginn 10.maí að Strandgötu 38

Hjartaheill og SÍBS í samstarfi við sveitarfélög og Heilbrigðisstofnanir Vestfjarða og Vesturlands munu bjóða Vestfirðingum ókeypis heilsufarsmælingu 9.-12. maí næstkomandi.
 

Mælingarnar ná til helstu áhættuþáttta lífsstílssjúkdóma þar sem mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun og styrkur auk þess sem boðið verður upp á öndunarmælingu fyrir þá sem mælast lágir í súrefnismettun. Jafnframt gefst þátttakendum kostur á að svara lýðheilsukönnun. Fræðsla um lífsstílstengda sjúkdóma verður í boði, hjúkrunarfræðingar frá heilsugæslunni verða á staðnum og veita ráðgjöf og eftirfylgd.  
 
Reglulega verður greint frá niðurstöðum mælinga á Facebook síðu SÍBS auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að fá sínar niðurstöður sendar í tölvupósti ásamt heildarniðurstöðum. Oddvitar, bæjar- og sveitarstjórar munu opna mælingarnar í sinni heimabyggð.
 

Sjá dagskrá fyrir SÍBS Líf og heilsa verkefnið í heilsugæslum í: 
Búðardal, þriðjudaginn 9. maí, kl. 11 – 13
Reykhólum, þriðjudaginn 9. maí. kl. 12 – 14
Patreksfirði, þriðjudaginn 9. maí, kl. 18 – 20
Tálknafirði, miðvikudaginn 10. maí, kl. 10 – 12
Bíldudal, miðvikudaginn 10. maí, kl. 10 – 12
Þingeyri, miðvikudaginn 10. maí, kl. 16 – 18
Flateyri, miðvikudaginn 10. maí, kl. 17 – 19
Ísafirði, fimmtudaginn 11. maí, kl. 10 – 14
Suðureyri, fimmtudaginn 11. maí, kl. 15 – 17
Bolungarvík, fimmtudaginn 11. maí, kl. 15 – 17
Súðavík, fimmtudaginn 11. maí, kl. 18 – 20
Drangsnesi, fimmtudaginn 12. maí, kl. 10 – 12
Hólmavík, fimmtudaginn 12. maí, kl. 14 - 17
 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón