A A A

Sumarstörf - Yfir­flokk­sstjóri og flokks­stjóri hjá vinnu­skóla

Tálknafjarðarhreppur leitar að einstak­lingum til starfa hjá vinnu­skóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 

 

Yfirflokksstjóri 

Tálknafjarðarhreppur leitar eftir kröftugum, áhugasömum, skipulögðum og skemmtilegum einstaklingi til að starfa í vinnuskóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 

Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum. 

Í starfinu felst að skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús og tómstundafulltrúa, leiðbeina ungmennum og vera í samskiptum við foreldra barna og unglinga. 


Flokkstjórar 

Tálknafjarðarhreppur óskar eftir að ráða einstaklinga sem eiga gott að vinna með öðrum, hafa frumkvæði, eru góðar fyrirmyndir, stundvísir, metnaðarfullir og samviskusamir. Starf flokkstjóra felst í að vinna með ungmennum. 

  

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2024 

Um er að ræða sumarstörf og  eru laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Tálknafjarðarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Frekari upplýsingar gefur Hafdís Helga Bjarnadóttir tómstundafulltrúi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps í síma 787 4175 og á netfanginu hafdishelga@vesturbyggd.is og tekur hún einnig á móti umsóknum. Áhugasamir einstaklingar sem uppfylla hæfniskröfur eru hvattir til að sækja um.

 

Körfur og pappírspokar

 

Körfur og pappírspokar fyrir lífrænt sorp

 

Þeir íbúar sem vilja fá plastkörfur og pappírspoka fyrir lífrænt sorp geta nálgast það í búðinni Hjá Jóhönnu frá og með deginum í dag og fram að páskum. Eftir það er hægt að fá körfur afhentar hjá umsjónarmanni áhaldahúss eftir samkomulagi. Pappírspokar munu áfram liggja frammi í búðinni hjá Jóhönnu þar til annað verður ákveðið.

                                                               Tálknafjarðarhreppur og Hjá Jóhönnu

Fundarboð 631. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps

Boðað er til 631. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, mánudaginn 11. mars 2024 og hefst kl. 17:00.

...
Meira

Skipulagsauglýsing, deiliskipulag fyrir stofnana- og íþróttasvæði á Tálknafirði

amkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:


Deiliskipulag fyrir stofnana- og íþróttasvæði á Tálknafirði.


 


Meginmarkmið skipulagsins er að skilgreina lóð fyrir grunnskólann á Tálknafirði á Sveinseyri og félagsheimilið Dunaga en einnig að skilgreina lóðir fyrir íþrótta- og skólastarfsemi og skipuleggja lóð fyrir tjaldstæði suðvestan við grunnskólann. Jafnframt er endurskilgreind aðkoma, bílastæði, gönguleiðir o.s.frv. m.t.t. umferðaröryggis. Deiliskipulagssvæðið er um 6,8 ha að stærð.

...
Meira

Við hvetjum þig til að bjóða þig fram

Frestur til að skila fram­boðum vegna kosn­inga til sveit­ar­stjórnar í sameinuðu sveit­ar­fé­lagi Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar sem fram fara 4. maí 2024 er til kl. 12 á hádegi föstu­daginn 29. mars 2024. 

...
Meira

Fundarboð 630. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps

Boðað er til 630. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, þriðjudaginn 27. febrúar 2024 og hefst kl. 17:00.

...
Meira
Eldri færslur
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Vefumsjón