A A A

Fólk í fyrirrúmi, borgarafundur Vestfirðinga

Sveitarfélögin á Vestfjörðum, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð, Reykhólahreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Árneshreppur, boða ásamt Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Verkalýðsfélagi Vestfirðinga til borgarafundar í íþróttahúsinu á Ísafirði nk. sunnudag 24. september kl. 14. Á fundinum verða rædd ein mikilvægustu hagsmunamál fjórðungsins um þessar mundir sem snúast öll um mikilvæga innviðauppbyggingu á Vestfjörðum. Meðal annars verður gerð grein fyrir meginniðurstöðum nýrrar skýrslu KPMG fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða um hagsræn og samfélagsleg áhrif sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi.
 

Starfandi ráðherrar málaflokkanna hafa staðfest komu sína til fundarins; ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála og ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. Ráðherra umhverfis- og auðlindamála hafði ekki tök á að þekkjast boðið. Auk þess hefur formanni Náttúruverndarsamtaka Íslands verið boðið til fundarins. Að loknum framsögum taka fulltrúar sveitarfélaganna, ráðherrar, fulltrúi KPMG og formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sæti í pallborði til að svara spurningum úr sal. Fundarstjóri verður Heimir Már Pétursson fréttamaður.
 

Verkefnin sem rædd verða á borgarafundinum lúta að raforkumálum (Hvalárvirkjun), samgöngumálum (Gufudalssveit) og sjókvíaeldi (í Ísafjarðardjúpi). Öll verkefnin sæta ýmist harðri gagnrýni, þar sem þess er jafnvel krafist að þau verði slegin út af borðinu, eða eru sífellt tafin um framkvæmdaleyfi þrátt fyrir eðlilegt ferli innan stjórnsýslunnar og löngu tímabær framlög á vegaáætlun.
 

Raforkumál á Vestfjörðum hafa lengi verið bágborin af ýmsum ástæðum. Bæði er þar úr sér gengið flutningskerfi til Vestfjarða sem veldur rafmagnsleysi heimila og atvinnulífs með reglubundnum hætti og stundum fjárhagstjóni þegar verst lætur. Ekki hafa enn komið fram áform um að bæta flutningskerfið. Vaxandi atvinnuuppbygging á sunnanverðum Vestfjörðum ásamt áformum um sambærilega innviðauppbyggingu á norðanverðum fjörðunum kalla á aukna raforku í fjórðungnum og þar er Hvalárvirkjun hagkvæmasti kosturinn svo fremi sem ráðist verði í gerð nýs tengipunktar fyrir raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Hvalárvirkjun er í nýtingarflokki rammaáætlunar en þrátt fyrir það er barist hatrammlega gegn virkjunaráformunum af ýmsum hagsmunaaðilum.
 

Ísafjarðardjúp er skilgreint fyrir sjókvíaeldi, eitt örfárra svæða á landinu enda fjarri öllum ábatasömum stangveiðiám sem hafa eðlilegt verndargildi. Engu að síður er barist ötullega gegn því eldi sem kynnt hefur verið.
 

Framkvæmdaaðilar um borgarafundinn 24. september á Ísafirði telja mikilvægt að gefa íbúum fjórðungsins kost á að stofna til málefnalegrar og gagnrýninnar umræðu með sveitarstjórnum og ráðherrum, þar sem sjónarmið íbúa fái að komast að í umræðunni um málefni fjórðungsins til jafns á við aðra. Því er mikilvægt að íbúar fái tækifæri til að spyrja út í þau brýnu verkefni sem verða til umræðu og fá svör við því hvers kunni að vera að vænta í þessum efnum á næstu mánuðum og að loknum kosningum.
 

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            
Næstu atburðir
Vefumsjón