Kirkjur í Tálknafjarðarhreppi
Í Tálknafjarðarhreppi eru tvær kirkjur, Kirkjan í Stóra-Laugardal og Tálknafjarðarkirkja. Nánari upplýsingar um kirkjurnar er að finna ef þú smellir á tenglana hér til hliðar.
Í Tálknafjarðarhreppi eru tvær kirkjur, Kirkjan í Stóra-Laugardal og Tálknafjarðarkirkja. Nánari upplýsingar um kirkjurnar er að finna ef þú smellir á tenglana hér til hliðar.
Stóra-Laugardalskirkja var vígð annan sunnudag í núviknaföstu 1907. Kirkjan er bjálkakirkja, tilsniðin í Noregi. Ýmsar sögur eru til um eignarhald kirkjunnar en Einar Ben eignaðist kirkjuna á sínum tíma, sem og jörðina sem Tálknafjarðarkirkja stendur á, en mun aldrei hafa greitt fyrir jarðirnar.
Altaristafla kirkjunnar er eftirlíking af síðustu kvöldmáltíðinni eftir Leonardo da Vinci.
Sjaldan er messað í Stóra-Laugardalskirkju nú orðið en þó er reynt að messa alla veganna einu sinni á sumri.
Tálknafjarðarkirja var vígð 5. maí 2002 og er fyrsta timburkirkjan sem byggð hefur verið á Íslandi í háa herrans tíð. Arkitekt kirkjunnar er Elísabet Gunnarsdóttir á Ísafirði.
Altari kirkjunnar er hannað af Hreini Friðfinnssyni sem og altaristaflan sem ekki er eiginleg altaristafla heldur stór veggur alsettur glitperlum.
Messað er á þriggja vikna fresti að jafnaði.
Meðhjálpari og formaður sóknarnefndar: Marínó Bjarnason, s. 456-2642