Bókasafn Tálknafjarðar
Bókasafnið hefur aðsetur í Grunnskóla Tálknafjarðar.
Netfang: bokasafn@talknafjordur.is
Starfsmaður: Guðlaug S. Björnsdóttir, Gsm: 862 2723
Opnunartími bókasafnsins:
Mánud. 8-10
Þriðjud. 8-10
Miðvikud. 8-10
Fimmtud. 8-10 og 20-21
Útlánareglur
Skírteini
Skírteini Bókasafns Tálknafjarðar er gefið út á einstakling og er óheimilt að nota skírteini annarra. Ef árgjald er ekki greitt er ekki hægt að fá lánað safnaefni.
Lykilorð
Lykilorð fyrir skírteinishafa til að komast inn á „mínar síður“ á www.gegnir.is úthlutar starfsmaður bókasafns.
Útlán
Lánstími er mismunandi, bækur eru að jafnaði lánaðar út í 30 daga en nýjar bækur eru lánaðar í 14 daga. Sumar bækur eru aðeins til nota á safni.
Sektir
Það er allra hagur að vel sé farið með safnaefni. Ef gögnum safnsins er skilað eftir að útlánstími rennur út eru greiddar dagsektir samkvæmt gjaldskrá. Innheimtubréf er sent út 4 vikum eftir skiladag. Glatist eða skemmist safnaefni í vörslu lánþega er það á hans ábyrgð og þarf hann þá að greiða lágmarks sekt eða andvirði þess sem tapast. Forráðamenn bera ábyrgð á því efni sem börn fá að láni.
Samþykkt í hreppsnefnd á 429.fundi 18.maí 2011
Gjaldskrá uppfærð og samþykkt í hreppsnefnd 14.desember 2011
Gildir frá 1.1.2012
