Jóga á suðursvæði Vestfjarða
Indverski Jóga meistarinn Sajeevan Arakkal verður með tíu daga námskeið á Tálknafirði sem byrjar 10 maí næstkomandi. Þetta er einstakt tækifæri sem allir ættu að notfæra sér og byrja sumarið með beint bak, fallegar línur og bros á vör. Jóga kennslan er jafnt fyrir vana sem byrjendur. Sajeevan er einstakur leiðbeinandi og eflir svo sjálfstraust iðkendanna að það eru allir farnir að standa á haus og hnýta á sig slaufur eftir nokkra daga. Námskeiðið skiptist í morgun- og kvöld tíma og verður haldið í íþróttasalnum á Tálknafirði. Aðstoðarkennari, Dagný A. Steinsdóttir.
Námskeiðið byrjar Fimmtudaginn 10 maí og líkur á Mánudeginum 22 maí.
Morguntímar: 5:45- 7:45. Hentar þeim sem eru búnir að sofa nóg í vetur.
Kvöldtímar: 18 – 20. Hentar þeim sem þrá betri svefn á kvöldin.
Dagskrá: Kennsla byrjar á Fimmtudaginn 10 maí og heldur áfram samfleytt en engin kennsla verður á Sunnudögum. Hver tími einkennist af slökun, öndun, æfingum, og hugleiðslu.
Skráið ykkur sem fyrst með því að hafa samband við:
Dagný Öldu í síma 662-0463 netfang: dagnyalda@simnet.is
Guðlaugu (Gullu) Björnsdóttur á Tálknafirði í síma 862-2723 netfang: gullabj@simnet.is
Óskað er eftir framlagi fyrir kostnaði meistarans til Íslands: 17,000 kr. fyrir einstaklinginn en 30,000 kr. fyrir hjónin eða þá sem vilja fara í alla tímana.
Hlakka til að sjá sem flesta;
Dagný A. Steindóttir
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 13. fundur 21. nóvember 2023
- Skipulagsnefnd | 14. fundur 21. nóv 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 11. fundur 23. nóvember 2023
- Sveitarstjórn | 623. fundur 28. nóvember 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 45. fundur 8. nóvember 2023
- Sjá allar fundargerðir