A A A

Óheimil losun sorps

Alltof oft kemur fyrir að sorp sé skilið eftir þar sem það á ekki að vera svo sem eins og við gámavöllinn þar sem þessi stæða var í morgun. Slíkt á ekki að sjást og viðkomandi er beðinn um að sjá til þess að þetta sorp verði flokkað og skilað á réttan hátt á gámavöllinn. Gámavöllurinn er opinn í fyrramálið frá kl. 10.00 – 12.00 og því einfalt hjá viðkomandi að koma þessu á réttan stað.
 

Einstaklingar og fyrirtæki eiga að fara með allan úrgang sem til fellur á gámavöllinn á Tálknafirði ef Kubbur sækir úrganginn ekki til viðkomandi. Öll fyrirtæki í Tálknafirði eiga að vera með samning um sorphirðu við Kubb sem sækir sorpið til viðkomandi fyrirtækis. Því er unnið að því að loka fyrir alla losun á öllu úrgangstimbri og öðrum úrgangi á geymslusvæðinu uppi í Hrafnadal og öll losun þar á öðru en greinum og trjáafklippum er bönnuð.
 

Unnið er að nýrri staðsetningu fyrir garðaúrgang og stefnt er að því að geymslusvæðið verði lokað fyrir aðra umferð en þeirra aðila sem þar leigja geymslusvæði. Með bættri umgengni á svæðinu opnast möguleiki á auknu rými fyrir geymslusvæði og þannig geti fleiri aðilar fengið leigt svæði fyrir geymslu.
 

Það er aldrei of oft ítrekað að þegar úrgangur er skilinn eftir þar sem hann á ekki að vera svo sem við gámavöllinn, á hafnarsvæðinu eða uppi í Hrafnadal þá kemur slík umgengni niður á okkur öllum sem greiðum hér sorpgjöld því kostnaðurinn sem hlýst af aukinni losun er greiddur af íbúum í gegnum sorpgjöld. Það er því öllum íbúum í hag að sýna ábyrga umgengni við sorp og úrgang og leggja þannig sitt af mörkum til að ekki þurfi að hækka sorpgjöld enn frekar.

 

Lilja Magnúsdóttir, umsjónarmaður sorpmála hjá Tálknafjarðarhreppi

« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Vefumsjón