Starfsmaður við félagsstarf eldri borgara Móbergi Tálknafirði
Félagsþjónusta Vestur-Barðastrandasýslu auglýsir eftir starfsmanni við félagsstarf aldraðra. Um spennandi mótunar- og þróunarstarf er að ræða sem býður upp á fjölbreytta framtíðarmöguleika Um 40% starf er að ræða.
Í starfinu felst m.a. að:
- Móta og skipuleggja félagsstarfið
- Fylgjast með nýjungum og innleiða þær í starfinu
- Leiðbeina fólki við handverk og félagsstarf
- Skipuleggja og sjá um innkaup
Menntun og hæfniskröfur:
- Reynsla og hæfni sem nýtist við stjórnun og skipulag starfsins
- Hæfni og áhugi á mannlegum samskiptum
- Áhugi og færni í ýmisskonar handverki og félagsstarfi
Um laun fer skv. gildandi kjarasamningum. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst. Öllum umsóknum verður svarað.
Allar frekari upplýsingar fást hjá Arnheiði Jónsdóttur í síma 450 2300 eða arnheidur@vesturbyggd.is.
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Fræðslunefnd | 10. fundur 11. maí 2023
- Skipulagsnefnd | 9. fundur 16. maí 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 9. fundur 17. maí 2023
- Atvinnu- og hafnarnefnd | 42. fundur 10. maí 2023
- Sveitarstjórn | 613. fundur 23. maí 2023
- Sjá allar fundargerðir