Stígamót, þjónusta við íbúa Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps
Það er með ánægju sem við tilkynnum að Stígamót, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hafa gert með sér samkomulag um þjónustu Stígamóta við íbúa byggðarlaganna. Samkomulagið er gert til reynslu í þrjá mánuði til að kanna hvort þörf er á þessari þjónustu. Ráðgjafinn sem kemur heitir Þórunn Þórarinsdóttir, hún hefur unnið í mörg ár á Stígamótum og bæði sinnt einstaklingsviðtölum og verið með sjálfshjálparhópa.
Þórunn byrjar mánudaginn 26. janúar og verður hálfsmánaðarlega fram til 1. maí en þá verður samningurinn endurskoðaður. Þjónustan er ókeypis og ef þátttaka verður mikil, kemur vel til greina að starfrækja sjálfshjálparhóp líka.
Tímabókanir eru í síma 562-6868 eða á thorunn@stigamot.is
Fleiri fréttir
Fundargerðir
- Íþrótta-, menningar- og æskulýðsnefnd | 11. fundur 5. september 2023
- Sveitarstjórn | 618. fundur 11. september 2023
- Sveitarstjórn | 617. fundur 22. ágúst 2023
- Umhverfis- og byggingarnefnd | 10. fundur 16. ágúst 2023
- Skipulagsnefnd | 11. fundur 15. ágúst 2023
- Sjá allar fundargerðir