A A A

Kynningarfundur - Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum

Opinn kynningarfundur verður haldinn í Þekkingarsetrinu Skor 19. janúar kl. 18:00.

Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er 300 kennslustunda nám ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 23 ára, eru starfandi á vinnumarkaði og hafa hafið nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi.

...
Meira

Sjókvíaeldi í Arnarfirði og Fossfirði - kynningarfundur á Bíldudal

Opinn kynningarfundur verður haldinn í félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal þann 24. janúar 2012, kl.17. Farið verður yfir lög og reglur um starfsleyfisveitingar Umhverfisstofnunar og fjallað um þær starfsleyfistillögur sem fyrir liggja. Þá verður gefinn kostur á umræðum og fyrirspurnum frá fundargestum. 

...
Meira

Auglýsing: fundur í hreppsnefnd

438. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, fimmtudaginn 19. janúar 2012 og hefst kl. 17:00

Sjá fundarboð hér.

Umsóknarfrestur auglýstur - AVS rannsóknarsjóður í sjávarútvegi

Umsóknarfrestur fyrir styrki 2012 hefur verið auglýstur. Umsóknir þurfa að berast sjóðnum fyrir 1. febrúar n.k. Um er að ræða sömu styrktarflokka og í fyrra, þ.e. rannsóknastyrki (eitt til þrjú ár), smástyrki og styrki til eflingar sjávarbyggða.

...
Meira

Skipulagsstofnun staðfestir vegstæðið þrátt fyrir allt

Skipulagsstofnun staðfesti í fyrradag fyrir sitt leyti breytingu á aðalskipulagi varðandi nýtt vegstæði Vestfjarðavegar nr. 60 úr Vattarfirði vestur í Kjálkafjörð vestast í Reykhólahreppi, þrátt fyrir að hafa fyrir mánuði gefið mjög neikvæða umsögn um þá framkvæmd.

...
Meira

Þorrablót Tálknfirðinga 2012

Nú er komið að því !

Það þarf bara að skrá sig á lista til að geta tekið þátt í okkar frábæra þorrablóti. 
Það verður haldið með pompi og prakt, hlátrasköllum og glensi þann 21.1.2012

í Íþrótta- og félagsheimili okkar Tálknfirðinga. 

Undirskriftalisti liggur frammi í versluninni Tálknakjör,

einnig er hægt að skrá sig í netfang  :  alltijarnum@simnet.is

fram til 16.janúar.


Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón