A A A

Skólastjóri Tálknafjarðarskóla

Sameinað sveitarfélag Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar óskar eftir að ráða skólastjóra Tálknafjarðarskóla. Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga til að stýra framsæknum skóla í nýjasta sveitarfélagi landsins.

 

Tálknafjarðarskóli er samrekinn grunn- og leikskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 35 nemendur. Í skólanum fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.

 

Einkunnarorð skólans eru jákvæðni – samvinna – skemmtun - þrautseigja

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg forysta og skólaþróun.
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans.
  • Samstarf við ýmsa aðila skólasamfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg.
  • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og þróun skólastarfs er kostur.
  • Leiðtogahæfni og metnaður.
  • Lipurð, hæfni og virðing í samskiptum ásamt góðu orðspori.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Umsókn skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi, kynnisbréf og upplýsingar um umsagnaraðila. 

Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2024 og starfskjör samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna SÍ og FSL. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júlí 2024 eða eftir nánara samkomulagi. 

Nánari upplýsingar gefur Arnheiður Jónsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs, í netfangi arnheidur@vesturbyggd.is og í síma 450 2300. Umsóknir skal senda á vesturbyggd@vesturbyggd.is.

Yfirflokkstjóri og flokksstjóri hjá vinnu­skóla

Tálknafjarðarhreppur leitar að einstaklingum til starfa hjá vinnu­skóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024.

 

Yfirflokkstjóri

Helstu verkefni og ábyrgð:

-          Skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús og tómstundafulltrúa.

-          Leiðbeina ungmennum.

-          Vera í samskiptum við foreldra ungmenna.


Hæfniskröfur:

-          Samskiptahæfni

-          Jákvæðni

-          Frumkvæði

-          Samviskusemi

-          Skipulagshæfni

-          Stundvísi

 

Um er að ræða 100% sumarstarf.


Flokkstjóri

Helstu verkefni og ábyrgð:

-          Vinna með ungmennum og leiðbeina þeim

Hæfniskröfur:

-          Samskiptahæfni

-          Jákvæðni

-          Frumkvæði

-          Samviskusemi

-          Skipulagshæfni

-          Stundvísi


Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2024

 

Um er að ræða sumarstörf sem henta öllum kynjum og eru laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga Samband íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

 

Frekari upplýsingar gefur Hafdís Helga Bjarnadóttir tómstundafulltrúi og tekur hún einnig á móti umsóknum í gegnum netfangið hafdishelga@vesturbyggd.is

Laus störf í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar

Tálknafjarðarhreppur auglýsir laus störf í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar.

 

Leitað er að einstaklingum með góða þjónustulund og getu til að sýna frumkvæði í starfi. Kunnátta í a.m.k. einu tungumáli auk íslensku er kostur. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og þurfa að standast hæfnispróf sundstaða.

 

Starfsfólk í Íþróttamiðstöð sinnir almennri afgreiðslu, þrifum, sundlaugarvörslu auk eftirlits með íþróttahúsi og klefum. Unnið er á vöktum dag, kvöld og helgar.. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní 2024 eða eftir samkomulagi. Bæði er hægt að sækja um framtíðarstarf sem og starf við sumarafleysingar. Starfsfólk Íþróttamiðstöðvar Tálknafjarðar tilheyrir fjölskyldusviði Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

 

Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Skylt er að afla upplýsinga úr sakaskrá samkvæmt 4. málsgrein 10. greinar æskulýðslaga nr. 70/2007 áður en fólk er ráðið til starfa í íþróttamiðstöð. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri í síma 450-2500 eða sveitarstjori@talknafjordur.is.

 

Umsóknareyðublöð er að finna á talknafjordur.is og skila skal umsóknum á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði. Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2024 og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Yfir­flokk­stjóri og flokks­stjóri hjá vinnu­skóla

Tálknafjarðarhreppur leitar að einstak­lingum til starfa hjá vinnu­skóla Tálknafjarðarhrepps sumarið 2024. 


Yfirflokkstjóri 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús og tómstundafulltrúa. 

  • Leiðbeina ungmennum. 

  • Vera í samskiptum við foreldra ungmenna. 

 
Hæfniskröfur: 

  • Samskiptahæfni 

  • Jákvæðni 

  • Frumkvæði 

  • Samviskusemi 

  • Skipulagshæfni 

  • Stundvísi 

Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum. 

 
Flokkstjórar 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Vinna með ungmennum og leiðbeina þeim 

Hæfniskröfur: 

  • Samskiptahæfni 

  • Jákvæðni 

  • Frumkvæði 

  • Samviskusemi 

  • Skipulagshæfni 

  • Stundvísi 

 
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2024.

Um er að ræða sumarstörf og eru laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Tálknafjarðarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Frekari upplýsingar gefur Hafdís Helga Bjarnadóttir tómstundafulltrúi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps og tekur hún einnig á móti umsóknum á netfangið it@vesturbyggd.is.

Fyrri síða
1
234567232425Næsta síða
Síða 1 af 25
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón