A A A

Starf í íþróttamiðstöð Tálknafjarðar

Tálknafjarðarhreppur auglýsir laust starf sundlaugarvarðar í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar.


Leitað er að einstaklingi með góða þjónustulund og getu til að sýna frumkvæði í starfi. Kunnátta í a.m.k. einu tungumáli auk íslensku er kostur. Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og þurfa að standast hæfnispróf sundstaða. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.


Störf sundlaugarvarða felast í almennri afgreiðslu og þrifum auk eftirlits með sundlaug og íþróttahúsi.Unnið er á vöktum dag, kvöld og helgar.


Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.


Skylt er að afla upplýsinga úr sakaskrá samkvæmt 4. málsgrein 10. greinar æskulýðslaga nr. 70/2007 áður en fólk er ráðið til starfa í íþróttamiðstöð.

 

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri í síma 450-2500 eða sveitarstjori@talknafjordur.is

 

Umsóknareyðublöð er að finna á talknafjordur.is og skila skal umsóknum á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, Tálknafirði.


Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar 2024.

« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Vefumsjón