A A A

Sundlaug Tálknafjarðar lokuð föstudaginn 27. október

Af óviðráðanlegum orsökum þarf að loka Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar kl. 15:00 í dag, föstudaginn 27. október 2023, og hafa sundlaugina lokaða.
 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Talning atkvæða fer fram fyrir opnum dyrum

Talning atkvæða í íbúakosningu um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar skal fara fram fyrir opnum dyrum svo að almenningi gefist kostur á að vera viðstaddur eftir því sem húsrúm leyfir. Viðstöddum ber að hlíta fyrirmælum kjörstjórnar og starfsfólks hennar á talningarstað.  Heimilt er að vísa hverjum þeim af talningarstað sem veldur röskun eða truflun á flokkun eða talningu atkvæða.

Talning atkvæða hefst kl. 20:00 laugardaginn 28. október næstkomandi. 

  • Í Tálknafjarðarhrepp verður talið í íþróttahúsi Tálknafjarðar í íþróttasalnum
  • Í Vesturbyggð verður talið í Félagsheimilinu Patreksfirði

    https://www.vestfirdingar.is

Kosn­ingakaffi

Tálknfirðingum og gestum þeirra er boðið í kosningakaffi laugardaginn 28. október 2023 milli kl. 13:00 og 16:00  í Vindheimum. Það eru Kvenfélagið Harpa og Tálknafjarðarhreppur sem standa að kosningakaffinu í sameiningu.

 

Öll hjartanlega velkomin.

Lausar stöður í Tálknafjarðarskóla

Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki, með 40 nemendur. Í skólanum fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.
 

Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþróttaálfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann allan af skipulögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri.

 

Tálknafjarðarskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmönnum með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi. Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður:

 

Leikskólakennari  (100% starfshlutfall) 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í leikskóla

  • Reynsla af kennslu á leikskólastigi

  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum

  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum

  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hefur hreint sakavottorð

 

EÐA

 

Stuðningur á leikskóla (100% starfshlutfall) 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla í vinnu á leikskóla er kostur

  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum

  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum

  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hefur hreint sakavottorð

 

Ræsting (50% starfshlutfall) 

Um er að ræða almennar ræstingar á skólahúsnæðinu, vinnutími samkvæmt samkomulagi.

  • Íslenskukunnátta kostur

  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri

 

Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
 

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
 

Umsókn sendist á birna@talknafjardarskoli.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Ráðið verður í stöðurnar eftir samkomulagi. 
 

Nánari upplýsingar um störfin veitir Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, skólastjóri, í síma 450-2522, netfang: birna@talknafjardarskoli.is

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina og áskilur stofnunin sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknarfrestur til 8. nóvember 2023
 

Dýralæknir á Tálknafirði á sunnudaginn, hundahreinsun og ormahreinsun katta fer fram

Sunnudaginn 29. október 2023 verður Helga Sigríður dýralæknir í áhaldahúsinu við Strandgötu á Tálknafirði og framkvæmir hundahreinsun og ormahreinsun katta. Sú þjónusta er innifalin í því gjaldi sem gæludýraeigendur greiða til Tálknafjarðarhrepps. Hægt er að fá aukna þjónustu fyrir dýrin og fer hún fram samkvæmt gjaldskrá dýralæknisins. Fólk er beðið um að panta tíma fyrir dýrin sín með því að hafa samband við Dýralæknastofu Helgu í gegnum netfangið dyralaeknastofahelgu@gmail.com eða í síma 896-5205 (Helga).

Dýralæknir á Tálknafirði á sunnudaginn, hundahreinsun og ormahreinsun katta fer fram.

Sveitarstjórnarfundur

Boðað er til 621. fundar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps sem fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38, þriðjudaginn 24. október 2023 og hefst kl. 17:00.

Sjá fundarboð hér (.pdf)

Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri

Eldri færslur
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Vefumsjón