A A A

Tillaga um nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar

1 af 2

Opinn kynningarfundur á Bíldudal, 3. desember 2012 kl 20.00


Kynningarfundur á tillögu að nýtingaráætlun strandsvæðis Arnarfjarðar verður haldinn í Félagsheimilinu Baldurshaga, Bíldudal. Mánudaginn 3. desember n.k. kl 20.00.

...
Meira

25 umsóknir bárust um starf sveitarstjóra Tálknafjarðarhrepps

Í lok dags þann 26.nóvember 2012 rann út umsóknarfrestur um auglýst starf sveitarstjóra í Tálknafjarðarhreppi.    Alls bárust 25 umsóknir um starfið og hefst nú úrvinnsla þeirra.  Öllum umsækjendum hefur verið send staðfesting á móttöku umsókna.

 

Tálknafjarðarhreppur hefur ráðið sérfræðing hjá Attentus mannauður og ráðgjöf ehf., til vinnu við mat á hæfni umsækjenda um starf sveitarstjóra á Tálknafirði.  

 

Þetta tilkynnist hér með.

                         
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti.

Særún fer aukaferðir

Tekin hefur verið sú ákvörðun að bæta við ferðum á Særúnu yfir á Brjánslæk.

...
Meira

Jólahlaðborð Sælkerahópsins

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á Jólahlaðborð Sælkerahópsins.  Tekið er við skráningum í síma  895 7189 og í netföngin hlura@simnet.is og elsareimars@gmail.com  
 
Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 4. desember.

...
Meira

Jólin alls staðar, tónleikar á Tálknafiðri

Jólin alls staðar eru glænýjir jólatónleikar þar sem Regína Ósk fer fyrir fríðum hópi söngvara og hljóðfæraleikara. Með henni í för verða þau Guðrún Gunnars, Guðrún Árný og Jogvan ásamt hljómsveit og svo barnakórum frá hverjum stað.


Þau heimsækja 19 kirkjur hringinn í kringum landið með jólatónleika fyrir alla fjölskylduna. Ævintýrið byrjar í Ólafsvík 28. nóvember og ferðast tónleikarnir svo norður, austur, suður og vestur og enda svo í Grafarvogskirkju fimmtudagskvöldið 20. desember.


 


Tónleikarnir verða  í Tálknafjarðarkirkju fimmtudaginn 29. nóvember 2012 kl. 21:00.

...
Meira

Baldur siglir til Eyja

Baldur mun sigla á milli lands og Eyja á meðan Herjólfur fer í slipp vegna skemmda sem urðu á skipinu í hafnarmynni Landeyjahafnar um helgina.

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón