Skráning á foreldranámskeið 6-12 ára barna með ADHD er hafin
Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD 6-12 ára.
Skuldlausir félagsmenn fá afslátt
Verður haldið Laugardagana 14. og 28. apríl.
Endurmenntunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7.
Meira
Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD 6-12 ára.
Skuldlausir félagsmenn fá afslátt
Verður haldið Laugardagana 14. og 28. apríl.
Endurmenntunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7.
Við viljum vekja athygli á að heimasíðan Gegneinelti .is hefur verið endurbætt. Meðal annars hefur undirskriftakerfi síðunnar verið einfaldað til muna þannig að mjög einfalt er fyrir alla, jafnt unga sem aldna, að undirrita þjóðarsáttmálann um baráttu gegn einelti. Við hvetjum fólk eindregið til þess að skrifa undir sáttmálann og sýna þar með hug sinn í verki gagnvart því samfélagslega vandamáli sem einelti er.
...440. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1, Tálknafirði, þriðjudaginn 20. mars 2012 og hefst kl. 17:00
Sjá fundarboð hér.
Melrakkasetrið opnar aftur um páskana eftir gagngerar endurbætur innanhúss.
Eins og kunnugt er stendur Melrakkasetrið fyrir ýmsum menningarviðburðum sem haldnir eru á efri hæð setursins í Eyrardal. Til að tryggja gestum okkar sæti þurfum við allt að 40 stóla á loftið en hingað til hafa stólar góðfúslega verið fengnir að láni í Grunnskóla Súðavíkur.
Við ætlum að bjóða velunnurum okkar að "tryggja sér sæti" með því að kaupa merktan stól á menningarloftið okkar. Penninn hefur ákveðið ríða á vaðið og styðja Melrakkasetrið með 5.000,- kr. framlagi fyrir hvern stól sem keyptur verður.
Nú leitum við til fleiri velunnara, bæði einstaklinga og fyrirtækja sem vilja styðja við starfsemi setursins og hjálpa okkur að kaupa stóla á loftið. Verðið fyrir hvern stól er 15.000,- kr.
Þegar greitt hefur verið fyrir stólinn verður hann merktur gefanda sem þar með á „tryggt sæti" á menningarloftinu. Að auki fylgir gjafabréf á sýningu Melrakkasetursins og veitingar í Rebbakaffi.