A A A

Skrifstofan lokuð

Skrifstofa Tálknafjarðarhrepps verður lokuð 14. og 15. mars.

Vegna námskeiðs.
 

Kveðja, starfsfólk Tálknafjarðarhrepps

Gjaldskrá fyrir móttöku á gámavelli

Frá og með 01. apríl verður breyting á móttöku sorps á gámavelli þar sem tekin verður upp notkun klippikorts fyrir gjaldskyldan úrgang. Fyrsta klippikortið er innifalið í sorpgjöldum og gildir fyrir móttöku á 4m3. Kortið er afhent húseigendum á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps og þar verður einnig hægt að kaupa viðbótarkort sem kostar kr. 8.500.

Meðfylgjandi er gjaldskrá fyrir móttekið sorp á gámavelli. Gjaldskránni er ætlað að mæta kostnaði við förgun sorps sem ekki ber úrvinnslugjald, það er pressanlegur rekstrarúrgangur sem fer í urðun, húsgögn, timbur, járn og úrgangur frá framkvæmdum. Þeir flokkar sem bera úrvinnslugjald svo sem raftæki, rúlluplast og hjólbarðar eru gjaldfrjálsir á gámavelli. Gjaldskráin gildir einnig fyrir fyrirtæki sem koma með sorp á gámavöll.
 

Gjaldskrá fyrir móttöku á gámavelli (.pdf)

 

Sveitarstjórnarfundur

520. fundur Hreppsnefndar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Strandgötu 38,
6. mars 2018 og hefst kl. 17:00.

Sjá fundarboð hér (.pdf)

Sveitarstjóri

Afhending samfélagsstyrkja Orkubús Vestfjarða 2017

Formleg afhending styrkjanna fór fram í dag kl. 11:00 í húsnæði OV að Stakkanesi Ísafirði, Eyrargötu Patreksfirði og Skeiði 5 Hólmavík.

 

Alls bárust 55 umsóknir og að þessu sinni voru veittir 43 styrkir samtals að fjárhæð 3.600.000 kr.

 

Þeir sem hlutu styrk að þessu sinni voru:

 

  • Blakdeild Vestra: Blakboltar og körfur fyrir bolta - 50.000 þús. kr.
  • Samgöngufélagið: Búnaður til útvarpsútsendinga í veggöngum - 100.000 þús. kr.
  • Héraðssamband Vestfirðinga: Áhaldakaup - 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Björg Suðureyri: Tækjabúnaður í björgunarbát - 250.000 þús. kr.
  • Héraðssamband Vestfirðinga, HSV: Fræðsluverkefni - 50.000 þús. kr.
  • Héraðssamband Vestfirðinga, HSV: Brettaæfingar í íþróttaskóla HSV - 50.000 þús. kr.
  • Sunnukórinn: Söngdagskrá  í tilefni 100 ára fullveldis Íslands - 50.000 þús. kr.
  • Foreldrafélag leik- og grunnskóla Önundarfjarðar: Gönguskíði fyrir leik-og grunnskóla - 100.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Grettir Flateyri: Efniskaup og smíði á gönguskíðaspori - 50.000 þús. kr.
  • Íþróttafélagið Vestri: Siðareglur og jafnréttisáætlun - 50.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Ernir: Ljósbúnaður á snjóbíl - 100.000 þús. kr.
  • Víkingar á Vestfjörðum kt. 480104-3580: Viðhald á hátíðarsvæði Þingeyringa - 100.000 þús. kr.
  • Björgunarfélag Ísafjarðar: Endurbætur á sjúkraföngum og persónubúnað - 100.000 þús. kr.
  • Sæfari,félag áhugamanna um sjósport á Ísafirði: Ungmennastarf - 100.000 þús. kr.
  • Hestamannafélagið Stormur: Barna og unglingastarf - 50.000 þús. kr.
  • Foreldrafélag Grunnskólans í Bolungarvík: Örnámskeið fyrir nemendur og foreldra - 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélag Bolungarvíkur: Búnaðarkaup - 100.000 þús. kr.
  • Knattspyrnufélagið Hörður: Íslandsmót 5fl. o.fl - 50.000 þús. kr.
  • Laufey Eyþórsdóttir: Stuðningur við fólk á einhverfurófi  - 50.000 þús. kr.
  • Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði: Leiksýning - 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Tindar Hnífsdal: Uppfærsla á fyrstuhjálparbúnað - 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitini Sæbjörg á Flateyri: Þakviðgerð - 100.000 þús. kr.
  • Elfar Logi Hannesson: Leiklistarsaga Dýafjarðar - 50.000 þús. kr.
  • Kómedíuleikhúsið: Einar Guðfinnsson söguleg leiksýning - 50.000 þús. kr.
  • Act alone: Leiklistarhátíðin Act alone 2018 - 50.000 þús. kr.
  • Höfrungur leikdeild: Uppsetning á Ronju Ræningjadóttur - 50.000 þús. kr.
  • Heilsubærinn Bolungarvík: Farþegahjólakaup - 100.000 þús. kr.
  • Sköpunarhúsið 72 ehf:  Húsið-House of Creativity - 50.000 þús. kr.
  • Sjómannadagsráð Patreksfjarðar: Sjómannadagurinn á Patreksfirði  - 200.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Blakkur: Lagfæring á bíl - 200.000 þús. kr.
  • Blús milli fjalls og fjöru.: Tónlistarhátíð - 50.000 þús. kr.
  • Sundfélagið Grettir og Hollvinafélag Gvendarlaugar hins góða: Hleðsla umhverfis Gvendarlaug  - 50.000 þús. kr.
  • Gunnar Smári Jóhannesson: Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga - 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Geislinn:  - 100.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Dagrenning Hólmavík: Endurnýjun tölvubúnaðar - 150.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Leifur heppni: Uppsetning og kaup á klórkerfi - 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið -Afturelding-(UMFA): Barna-og unglingastarf - 100.000 þús. kr.
  • Albert Páll Sigurðsson: Gera upp Ólafarbrunn í Flatey - 50.000 þús. kr.
  • Ungmennafélagið Neisti: Kaup  á róðravél  - 50.000 þús. kr.
  • Skíðafélag Strandamanna: Æfingaferð til Svíþjóðar með krakka - 50.000 þús. kr.
  • Björgunarsveitin Björg Drangsnesi: Snjóflóðabakpokar fyrir vélsleða - 150.000 þús. kr.
  • Nemendafélag Reykhólaskóla: Ungmennahelgi Laugum í Sælingsdal  - 100.000 þús. kr.
  • Leikfélag Hólmavíkur: Leiksýning - 50.000 þús. kr.

 

Á vef ov.is og facebook síðu Orkubúsins eru myndir frá afhendingu samfélagsstyrkjanna.

Upplýsingasíða fyrir almenningssamgöngur

Sett hefur verið upp upplýsingasíða á facebook fyrir almenningssamgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar verður hægt að nálgast upplýsingar allt sem viðkemur samgöngunum. Ef fella þarf niður ferðir vegna veðurs eins og kom fyrir nú í vikunni verða upplýsingar um það framveigis settar þar inn.

Síðuna má finna hér.

Til umsagnar: Drög að lagafrumvarpi um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.
 

Unnt er að senda umsagnir um drögin til og með 9. febrúar nk. og skulu þær sendar á netfangið postur@anr.is.
 

Frumvarpið er á slóðinni:
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2018/01/30/Til-umsagnar-Drog-ad-lagafrumvarpi-um-breytingu-a-ymsum-lagaakvaedum-sem-tengjast-fiskeldi/




Eldri færslur
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Vefumsjón