Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða 2012 ályktaði um samgöngumál ofl.
Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða 2012 var haldinn í Heydal s.l. fimmtudag.
Fundurinn var ágætlega sóttur og málefnalegur. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru samþykktar þar nokkrar ályktanir. Má þar fyrst nefna stuðningsályktun við tillögu Búnaðarþings 2012 um endurskipulagningu leiðbeiningaþjónustunnar. Einnig ályktanir um samgöngubætur innan Vestfjarða með gerð Dýrafjarðargangna og endurbótum á vegi yfir Dynjandisheiði, þá áskorun til stjórnvalda um jöfnun flutningskostnaðar á raforku á landsvísu ásamt bótum á dreifikerfi með tilliti til gæða rafmagns og afhendingaröryggis og áherslu á hraðari uppbyggingu þriggjafasa rafmagns.
Meira