A A A

Truflun á áætlun ferjunnar Baldurs í september

Eins og kunnugt er hafa Sæferðir unnið að því í um eitt ár að finna ferju til að endurnýja núverandi ferju, Baldur.  Eftir mikla vinnu og eftirgrennslan tókst loks að finna norska ferju sem hentar vel. Um er að ræða nokkru stærra skip en Baldur og nemur aukningin í bílaplássi um 40 – 45%. Auk þess er skipið með alveg lokað bílaþilfar og er lofthæð þilfarsins yfir 4,5 metrar.

Skipið hefur verið í siglingum í Lofoten í N-Noregi um árabil og uppfyllir kvaðalaust allar norskar reglur varðandi siglingar á svokölluðu „C“ svæði, sem er það sama og Breiðafjörður flokkast undir sem og samræmdar Evrópureglur sem eru þær sömu og hér á landi og íslensk siglingayfirvöld miða sig almennt við og fara eftir. Búið var að semja um kaupverð skipsins, fjármagna kaupin og semja um afhendingu í lok júlí s.l. Í framhaldi var samið um sölu á Baldri miðað við að nýja skipið hæfi siglingar á Breiðafirði 6. September n.k. en samið hafði verið við Vegagerðina um að Baldur færi þá til Vestmannaeyja til að leysa Herjólf af í 3 til 4 vikur. Um þetta voru gerðir fastir dagsettir samningar, enda átti tíminn að vera nægur til að fá staðfest innflutningsleyfi á ferjuna frá Noregi.
 

Nú gerist það hins vegar, að eftir um 8 vikur frá því að íslensk siglingar yfirvöld skoðuðu ferjuna sem Sæferðir hyggjast kaupa frá Noregi, og gáfu henni góð meðmæli, að innflutningsleyfi fyrir skipinu hefur ekki ennþá fengist. Eins og fyrr segir uppfyllir skipið allar norskar og evrópskar reglur og þar með taldar íslenskar reglur. En siglingayfirvöld beita fyrir sig, að mati Sæferða og lögmanna félagsins, óljósum hindrunum á innflutningi skipsins. Ágreiningur er því á milli Sæferða og siglingayfirvalda um túlkun regluverksins.  Óskað hefur verið eftir úrskurði Innanríkisráðuneytisins í málinu en því miður er ljóst að þessi töf mun valda því að ekki tekst að koma norsku ferjunni í áætlun á tilsettum tíma. Vonast er samt eftir, að einungis fárra daga töf verði á afgreiðslu málsins. Samt sem áður er ljóst að fella verður niður siglingar yfir Breiðafjörð í nokkra daga,  þar sem útgerðin er bundin af samningi sínum við Vegagerðina um leigu á Baldri vegna afleysinga fyrir Herjólf frá 6. september.
 

Vonir okkar standa til að  ferjusiglingar yfir Breiðafjörð falli að hámarki niður í ca. eina viku og að norska ferjan verði komin í áætlun fyrir miðjan september. Ferðir yfir fjörðinn falla því niður frá og með 6. september, nema siglingar í Flatey sem verða 3 ferðir í viku á skoðunarferðaskipinu Særúnu. (Nánar í afgreiðslu 433 2254 og seatours@seatours.is)
 

Allar nánari upplýsingar um þessi mál veitir Pétur Ágústsson, í síma 864 8865
eða Páll kr. Pálsson, stjórnarformaður Sæferða,  í síma 820 1030 

Fréttatilkynning tekin af síðu Sæferða, saeferdir.is

Félagsmiðstöðin Tunglið

Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir forstöðumanni í félagsmiðstöðina Tunglið frá og með 1 október. Um hlutastarf er að ræða og er starfshlutfall 20%.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps.

Umsóknir má senda í tölvupósti á talknafjordur@talknafjordur.is


Auglýsing: Sveitarstjórnarfundur

473. fundur Sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1 Tálknafirði, þriðjudaginn 19. ágúst og hefst kl 17:00.   Sjá fundarboð hér (.pdf)

 
Sveitarstjóri

Úthlutun Menningarráðs Vestfjarða 2014

Menningarráð Vestfjarða hefur nú lokið við að fara yfir umsóknir um styrki vegna ársins 2014 og stjórn Fjórðungssambands Vestfjarða staðfest tillögu ráðsins um úthlutun. Að þessu sinni voru samtals 35,2 milljónir til úthlutunar til margvíslegra menningarverkefna og uppbyggingar víða um Vestfirði. Umsóknir voru fjölbreyttar og mörg verkefni afar áhugaverð. Menningarráð vill óska styrkhöfum til hamingju með framlögin og umsækjendum öllum góðs gengis við vinnu að sínum verkefnum.

Sjá nánar lista um framlög hér.

Auglýsing: Aðalskipulagsbreyting, skipulagslýsing Bugatúni

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 17. júlí 2014 skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps dags. 24. júní 2014. Viðfangsefni breytingarinnar er að breyta þéttbýlinu á Tálknafirði þar sem svæði V3/A2 og S8 er breytt í svæði fyrir íbúðarbyggð að litlum hluta við Bugatún. Með því minnka svæði V3/A2 og S8 á kostnað blandaðar byggðar. Einnig eru gerða leiðréttingar á númerum á svæðum fyrir þjónustustofnanir í þéttbýli en númer í greinargerð og uppdrætti hafa víxlast á tveimur stöðum. Einnig var gerð breyting á aðalskipulaginu er lýtur að dreifbýli þar sem verður bætt við nýju efnistökusvæði E5 í Botnsdal. Efnismagn verður um 30.000 m3 en um er að ræða möl sem á að nota til uppfyllingar.

 

Skipulagslýsinguna má nálgast á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps að Miðtúni 1 og á

heimasíðu sveitarfélagsins www.talknafjordur.is.  

 

Íbúar og hagsmunaaðilar geta sent inn ábendingar varðandi viðfangsefni og markmið

skipulagsins. Ábendingar má senda á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, Miðtúni 1, 460

Tálknafirði eða á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is

Skipulagsfulltrúi Tálknafjarðarhrepps

Óskar Örn Gunnarsson


Lýsing á skipulagsverkefni, Bugatún (.pdf)

 

SEEDS kynnir spennandi tækifæri fyrir ungt og eldra fólk í Evrópu

SEEDS kynnir spennandi tækifæri í Frakklandi, Portúgal, Svíþjóð og á Ítalíu.


Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS kynna spennandi tækifæri erlendis fyrir ungt fólk (á aldrinum 15 - 30 ára) og fyrir eldra fólk (á aldrinum 50+ ára)  um alla Evrópu í samstarfi við Erasmus+ og Grundtvig áætlanir Evrópusambandsins.


Þátttakendur fá hluta af ferðakostnaði endurgreiddan, auk þess sem þeim er séð fyrir fæði og húsnæði á meðan að verkefninu stendur.
Athugið að meðfylgjandi eru tenglar þar sem hægt er að fá ítarlegri upplýsingar um verkefnið.


Umsóknarfrestur er mismunandi eftir verkefnum
Umsóknareyðublað er að finna hér og eru áhugasamir beðnir um að fylla það út á ensku.

...
Meira
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
Næstu atburðir
Vefumsjón