Málverkasýning í Dunhaga
Ragnheiður Ólafsdóttir brottfluttur Tálknfirðingur, verður með málverka- og sölusýningu
í Dunhaga á laugardaginn kl. 13:00-17:00
Allir hjartanlega velkomnir
Ragnheiður Ólafsdóttir brottfluttur Tálknfirðingur, verður með málverka- og sölusýningu
í Dunhaga á laugardaginn kl. 13:00-17:00
Allir hjartanlega velkomnir
DAGSKRÁ TÁLKNAFJÖRS 25. – 27. JÚLÍ 2014
Föstudagurinn 25. júlí
Kl. 17:00 Nýjung! UMFT verður með nýjan leik: Sextíu sekúndur í sigur (minute to win it)
Leikurinn verður á hátíðasvæðinu við Hrafnadalsveg nema ef veður verður óhagstætt þá verður leikurinn í íþróttahúsinu.
Kl. 21:00 Brenna og bollasúpa á Naustatanga (muna að taka með bolla) Steini trúbador skemmtir á Hópinu fram eftir nóttu – aðgangseyrir 1.000-
Laugardagurinn 26.júlí
Kl. 13:00-13:30 Dorgveiðikeppni á bryggjunni. Skráning á staðnum.
Mætið tímanlega. Verðlaunaafhending á grillinu um kvöldið. Verðlaun fyrir flesta fiska og þyngsta fiskinn.
Öll dagskrá Tálknafjörs fer fram á hátíðasvæðinu við Hrafnadalsveg.
(Í íþróttahúsinu ef við þurfum að grípa til plan B)
KL. 14:00-16:00 verður dagskrá á hátíðasvæðinu, markaður og fleira:
Lalli töframaður kennir yngstu áhorfendunum töfrabrögð
Kassaklifur á vegum Björgunarsveitarinnar Tálkna
Söngvakeppni fyrir yngstu listamennina
Útimarkaður í tjaldinu
Ýmiskonar handverk, matur, og sælgæti og allskonar......
Kaffisala Kvenfélagsins Hörpu.
Hoppukastalar fyrir börnin.
Kl. 19:00-00:00 Götugrill á hátíðasvæðinu.
Allt á sama stað, grill og skemmtidagskrá á hátíðasvæðinu okkar við Hrafnadalsveg
Eftir grillið um kvöldið u.þ.b. kl. 20:00 stíga á svið:
Lalli töframaður skemmtir okkur eftir matinn.
Lifandi tónlist, hljómsveitin Festival kemur okkur í meira stuð.
Um miðnætti treður Árni Grétar upp á Hópinu og er DJ langt fram á nótt FRÍTT
Aðgangseyrir á grill og skemmtidagskrá er kr. 1.500- fyrir 12 ára og eldri.
Armbönd verða seld í Landsbankanum og sundlauginni fyrir helgina og á útimarkaðnum á laugardag.
Armband er ávísun á mat!
Sjá auglýsingu: TÁLKNAFJÖR dagskrá 2014 (.pdf)
Tálknafjarðarhreppur auglýsir eftir starfsmanni við félagslega heimaþjónustu frá og með 1. september. Um tímavinnu er að ræða.
Um laun fer eftir gildandi kjarasamningum.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is sími: 4502300.
Umsóknir má senda í tölvupósti.
472. fundur Sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps verður haldinn að Miðtúni 1 Tálknafirði, fimmtudaginn 17. júlí og hefst kl 17:00. Sjá fundarboð hér (.pdf)
Sveitarstjóri
Fundur vegna Tálknafjörs verður haldinn á Hópinu, miðvikudaginn 16. Júlí kl. 20:00.
Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:
Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.
Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2014 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Haukur Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður. Netfang: haukurhannibalsson@simnet.is
Í stjórn sjóðsins eru: Haukur Hannibalsson, Óli Th.Hermannsson og Sigurður H. Magnússon.